Breytingar á námslánakerfinu í vændum Karen Kjartansdóttir skrifar 8. september 2012 18:30 Fréttablaðið/GVA
Heildarendurskoðun á framfærslu námsmanna stendur yfir í menntamálaráðuneytinu sem gætu gert framhaldsskólanám lánshæft. Menntamálaráðherra stefnir á að leggja fram frumvarp sem gerir ráð fyrir að nemendur geti fengið hluta námslána sinna felldan niður ljúki þeir námi á tilsettum tíma. Að sögn menntamálaráðherra gætu breytingarnar haft í för með sér niðurfellingu á fjórðungi af höfuðstól námslána ef nemendur ljúka námi á tilsettum tíma. „Þetta er auðvitað hvetjandi til þess að fólk ljúki námi sínu á réttum tíma," segir Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra. „Fyrirmyndirnar eru frá Norðurlöndum sem hafa byggt sín kerfi svona upp til að draga úr því að nemendur falli brott. Hugsunin er að þá sú að þetta eigi við lánshæft nám og við erum að vinna að því að koma þessum tillögum í frumvarpsform í samráði við hagsmunaaðila þessa dagana." Hagkvæmt er að koma í veg fyrir að nemendur séu lengur í námi en þörf er á. Aðgerðir sem þessar kosta samt líka mikið og enn á eftir að greina kostnað við frumvarpið. Höfum við efni á þessu? „Það er eitt af því sem verið að er að vinna að, það er að kostnaðargreina þetta en þetta er eitt af því sem er mjög þjóðhagslega hagkvæmt að mínu mati að fólk ljúki námi fyrr en ella." Kvartað hefur verið yfir því að sumt nám sé orðið svo langt að ekki borgi sig að fara í það. En stendur ekki til að stytta nám? „Þetta myndi líklega ýta undir það að fólk lyki námi fyrr en eitt af lykilatriðunum sem við viljum ná fram með þessu er að við viljum skoða framfærslukerfið í heild sinni, ekki bara það sem hefur verið lánshæft hingað til heldur líka í framhaldsskólanámi. Við höfum verið að vinna að verkefni í þeim efnum með velferðarráðuneytinu. Þannig við stefnum að því að vera komin með eitthvert heildstætt kerfi þegar við erum búin með þessa vinnu."
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Sjá meira