Innlent

Galtómt Alþingi

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Þegar þingmenn voru að yfirgefa Alþingi í nótt á leið í sumarfrí mættu rafvirkjar og smiðir til að losa borð og aftengja tölvur til að undirbúa framkvæmdir á Alþingissalnum í sumar.

Það var heldur tómlegt um að litast í sal Alþingis fyrir hádegi í dag. Búið var að fjarlægja alla stóla úr salnum og smiðir, rafvirkjar og burðarmenn höfðu í nægu að snúast við að aftengja og flytja borð þingmanna í burtu .

Um leið og og þingfundi var lokið komu fyrstu menn til að aftengja tæki, þetta gerum við á fjögurra ára fresti því forseti Íslands er settur inn hérna í salnum 1. ágúst. Þá höfum við tækifæri til að gera salnum ýmislegt til góða," Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis.

Í sumar verður gólfið tekið í gegn og því þarf að flytja öll húsgögn í burtu á meðan. Helgi segir að framkvæmdir hafi frestast aðeins þar sem þinglok voru seinna en gert var ráð fyrir svo menn þurfa að hafa hraðar hendur.

Á ekkert að halda ball svona í millitíðinni? „Nei, en ég er ekki frá því að hér yrði ágætur ballstaður. Það er mjög gott hljóð í salnum og svo hugsa ég að það væri hægt að slá hér upp balli og dansa. Það væri örugglega meiri gleði í því en er í þingsalnum annars.

Alþingissalurinn virðist vera ágætlega stór í sjónvarpinu en í raun er hann einungis rúmur 91 fermetri sem gerir minna en 1 og hálfan fermetra fyrir hvern þingmann sem þar situr. Fyrir innsetningu forseta Íslands þarf að koma miklum fjölda gesta fyrir í salnum auk kórs og hljómsveitar.

„Það er borð hér í salnum fyrir forseta. Hann og kona hans eða karlmaður ef því er að skipta, þá fara þau út á svalir og síðan er hérna svolítil athöfn hér á eftir inni í þinghúsinu.

Margar hendur vinna létt verk og eftir einungis nokkrar klukkustundir var salurinn sem við þekkjum oftast svona, orðinn galtómur, en hann eins og þingmenn fær leyfi frá þingstörfum til 11.september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×