Innlent

Thick as a Brick flutt í heild sinni í Hörpu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Ian Anderson, forsprakki hljómsveitarinnar Jethro Tull heldur tónleika í Hörpu í vikunni og flytur sitt frægasta verk í heild sinni.

Anderson heldur tvenna tónleika í Eldborgarsalnum í Hörpu á morgun og hinn. Þar mun hann spila tímamótaverkið Thick as a Brick í heild sinni en það hefur hann ekki gert í fjörutíu ár. Það þurfti því að huga að ýmsu.

„Til að mögulegt væri að endurskapa upphaflega verkið á trúverðugan hátt og svo spilum við framhaldið sem kom 40 árum síðar, Thick As a Brick II, sem er stórt stökk til ársins 2012," segir Anderson.

Thick as a Brick segir sögu átta ára drengs, Geralds Bostocks og á nýju plötunni veltir Anderson fyrir sér hvað á daga hans hafi drifið. Hann segir að plöturnar tvær eigi ýmislegt sameiginlegt þrátt fyrir að fjörutíu ár skilji þær að.

„Þær hafa svipaða þætti því ég vildi halda sama hljóðsviði, líkt og samfelldni frá 1972, svo ég valdi þessi klassísku hljóðfæri sem við notuðum á þeirri plötu, eins og Fender-djassbassa, Gibson Les Paul gítar, Hammond-orgel og eitt og annað, flautan er til dæmis ekki algeng í rokktónlist."

Anderson er ekki að koma hingað til lands í fyrsta skiptið og hefur hann spilað hér nokkrum sinnum í gegnum árin.

„Við erum alls ekki ókunnugir á Íslandi og í Reykjavík sérstaklega. Flestir í hljómsveitinni hafa komið hingað áður og þeir þekkja verstu barina í bænum," segir Anderson.

Anderson þakkar öðrum Íslandsvini það að hann hafi ákveðið að taka upp þverflautuna sem hann er svo þekktur fyrir. Og eftir tæp fimmtíu ár í bransanum er hann langt því frá hættur.

„Tónlistarmenn geta haldið áfram. Ef ég væri ökumaður í Formúlu 1 keppninni væri öllu lokið núna. Ég hefði drepið mig eða gæti allavega ekki unnið við það lengur. En sem tónlistarmaður, listamaður eða rithöfundur, þá er ekkert sem kemur í veg fyrir að maður haldi áfram og verði skapandi, gamall maður."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×