Meira en 1.300 á biðlistum eftir félagslegum íbúðum 28. júní 2012 07:00 Myndin er af Ísafirði og tengist fréttinni ekki beint.
Meira en 1.300 manns eru á biðlistum eftir íbúðum innan félagslegra kerfa stærstu sveitarfélaga landsins. Algengasti biðtími eftir íbúðum er á bilinu eitt til tvö ár og eru hlutfallslega flestir á biðlista hjá Kópavogsbæ miðað við fjölda íbúða í boði. Ragnar Snorri Magnússon, hjá velferðarsviði Kópavogs, segir ljóst að fleiri íbúðarúrræða sé þörf. „Það er alltaf verið að ræða um að kaupa fleiri, en ekkert hefur verið ákveðið," segir Ragnar. „En það er nokkuð ljóst að það þarf fleiri íbúðir." Fréttablaðið ræddi við forsvarsmenn húsnæðissviða stærstu bæjarfélaga landsins og sammæltust allir um að fleiri leiguíbúðir vanti á markað. Síaukin eftirspurn eftir húsnæði sé ekki í samræmi við það sem í boði er. Reykjavíkurborg hefur um 1.800 íbúðir í boði og er hlutfallið það hæsta á landinu miðað við íbúatölu bæjarfélaga. Biðtími hefur þó lengst á milli ára, miðað við óútgefna ársskýrslu borgarinnar, eins og sjá má í meðfylgjandi töflu. Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur, segir að nauðsynlegt sé að fjölga leiguíbúðum, en horfir einnig á frekari framtíðarlausnir eins og húsnæðisbótakerfið. „Ég vona að þessar bætur verði að veruleika í upphafi næsta árs," segir hún. „Það þarf aðra þróun heldur en að sveitarfélögin fari að kaupa meira húsnæði. Það er okkar framtíðarsýn, að fólk hafi val og finni sér sitt eigið leiguhúsnæði." Björk vill forðast frekari flokkun húsnæðisúrræða þar sem því fylgi sú hætta að til verði frekari samþjöppun félagslegra vandamála. „Við munum fjölga leiguíbúðum í borginni svo fólk þurfi ekki að leita inn í félagslega kerfið sem slíkt," segir hún. „Heldur á það að finna sér húsnæði við hæfi og fá svo stuðning í samræmi við það í formi bóta." - sv / sjá síðu 12
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Sjá meira