Segjast ekki sekir um að hafa svipt bræður frelsi sínu Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. júní 2012 13:45
Elís Helgi Ævarsson og Steindór Hreinn Veigarsson neituðu báðir að hafa svipt tvo bræður frelsi og reynt að ræna þá þegar ákæra gegn þeim var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Mönnunum er gefið að sök að hafa farið heim til karlmanns í Grafarvogi, þar sem hann var staddur ásamt bróður sínum og ógnað bræðrunum með framkomu sinni. Steindór Hreinn hafði vasahníf í hendi og haft uppi hótanir um að beita þá líkamlegu ofbeldi ef annar bróðurinn yrði ekki við kröfu ákærða Elísar Helga um að afhenda honum allt að 500 þúsund krónur. Elís Helgi fór því næst með manninum, gegn vilja hans, í útibú Íslandsbanka að Stórhöfða 17, í þeim tilgangi að hann tæki þar út peninga af bankareikningi sínum. Steindór Hreinn varð eftir í Grafarvoginum með hinum bróðurnum, sem komst ekki burt úr íbúðinni af ótta við Steindór Hrein vegna ógnandi framkomu hans, og var bróðirinn þannig sviptur frelsi sínu í allt að klukkustund. Ekki kom til úttektar fórnarlambsins af bankareikningnum þar sem lögregla kom á vettvang og handtók Elís Helga. Bæði Elís Helgi og Steindór Hreinn eiga langa brotasögu að baki en Elís Helgi var meðal annars fundinn sekur um morð á áttræðri konu, móður Gunnars Þorsteinssonar í Krossinum.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Sjá meira