Hestamennirnir komnir í Hrútafjörð Kristján Már Unnarsson skrifar 7. júlí 2012 20:00 Hestamennirnir Magnús Pétursson, Sigurður Sævar Sigurðsson, Ólafur Finnbogason og Pétur Óli Pétursson. Mynd/Hildur Eiríksdóttir
Hestamennirnir fjórir, sem fyrir viku lögðu upp í leiðangur milli Látrabjargs og Gerpis, vestasta og austasta odda Íslands, eru væntanlegir í Hrútafjörð í kvöld. Þar með hafa þeir riðið bæði um Vestfirði og Vesturland en í dag fara þeir úr Dalasýslu yfir í Strandasýslu. Fjórmenningarnir, þeir Magnús Pétursson, Pétur Óli Pétursson, Ólafur Finnbogason og Sigurður Sævar Sigurðsson, hafa sextán hesta til reiðar. Í morgun lögðu þeir upp frá Ljárskógaseli norðan Búðardals, þaðan lá leiðin yfir í Laxárdal og um Sölvamannagötur og loks að Fjarðarhorni í Hrútafirði. Ferðin hófst þann 30. júní og var fyrsta dagleiðin frá Bjargtöngum yfir á Rauðasand. Þeir hafa síðan riðið um Barðastrandarsýslur og Dalasýslu, fóru meðal annars Þingmannaheiði og um Reiphólsfjöll yfir á gömlu Þorskafjarðarleiðina og niður Þorgeirsdal. Þeir riðu því næst yfir Þorskafjörð á fjöru. Í gær fóru þeir úr Saurbæ um Sælingsdalsheiði og hefur allt gengið vel til þessa, að sögn Magnúsar. Þeir áforma að hvílast á morgun, sunnudag, en síðan liggur leiðin yfir á Norðurland og í Húnavatnssýslur, um Miðfjörð, Víðidal, Vatnsdalshóla, Húnavelli, Svínavatn og að Auðkúlurétt. Síðasta dagleiðin þann 11. júlí liggur yfir brúna yfir Blöndu við Löngumýri og að Húnaveri, yfir Vatnsskarð niður í Skagafjörð og loks að Vindheimum. Leiðinni þvert yfir Ísland skipta þeir í tvo áfanga. Sá fyrri er frá Látrabjargi að Vindheimum í Skagafirði. Síðari áfangann, úr Skagafirði til Austfjarða, hyggjast þeir geyma til næsta sumars.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira