Áhrif kvenna í atvinnulífinu eru að aukast Þorkell Sigurlaugsson skrifar 7. mars 2012 06:00 Framundan er tími aðalfunda og kjör stjórna fyrirtækja og eftir tæp tvö ár eða í september 2013 taka gildi ný lög sem kveða á um að hlutfall hvors kyns verði aldrei lægra en 40% í stjórnum stærri hlutafélaga. Þetta á við um öll fyrirtæki með fleiri en 50 starfsmenn. Það var umdeilt hvort það þyrfti löggjöf til að knýja fram jákvæðar breytingar í þessa átt. Staðreyndin er aftur á móti sú að viðhorfin eru að breytast og flestir eru nú sammála um að auka þurfti þátt kvenna í stjórnun fyrirtækja og nýta þannig mikilvæga starfskrafta og þekkingu þeirra sem eru helmingur þjóðarinnar. Á Viðskiptaþingi þann 15. febrúar jókst hlutur kvenna í stjórn Viðskiptaráðs milli aðalfunda. Í fráfarandi stjórn voru konur 33% af aðalstjórnarmönnum. Nú nemur hlutfall kvenna í aðalstjórn um 37%. Heiðursfélagar ViðskiptaráðsÁ afar vel heppnuðu Viðskiptaþingi voru fimm karlar, fyrrum formenn og velunnarar Viðskiptaráðs, sæmdir nafnbótinni Heiðursfélagi Viðskiptaráðs. Þeir voru; Davíð Scheving Thorsteinsson, Haraldur Sveinsson, Hjalti Geir Kristjánsson, Jóhann J. Ólafsson og Ragnar S. Halldórsson. Heiðursfélagi Viðskiptaráðs er sæmdarheiti sem veitt er mönnum er hafa lagt sérstaklega mikið af mörkum í þágu viðskiptafrelsis og framfara í atvinnulífinu. Þér félagar áttu þetta svo sannarlega skilið og ég fann það á fundinum að þeir mátu það mikils að fá þessa viðurkenningu. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, tilkynnti um útnefninguna og sagði m.a: „Á langri sögu Viðskiptaráðs hefur margt áunnist. Gildin hafa ávallt verið þau sömu og eiga ekki síður við í dag en fyrir 95 árum þegar ráðið var stofnað. Og það vill stundum gleymast, svona í svartnættishjali og skrítinni pólítík, að sú umgjörð atvinnulífs sem við höfum byggt hér á Íslandi hefur skapað okkur afar góð lífskjör. Þetta er hinsvegar allt mannanna verk og þeir eru margir sem lagt hafa hönd plóg og búið okkur sem á eftir ganga frjósaman jarðveg til ræktunar“ Þeir sem hlutu sæmdarheitið Heiðursfélagi Viðskiptaráðs Ísland að þessu sinni voru eingöngu karlar. Þegar þeir voru í forystu í viðskiptalífinu var það nánast undantekning að konur væru þar í hópnum. Þetta sýnir þá miklu breytingu sem orðið hefur á kynjahlutföllum í atvinnulífinu undanfarna 2-3 áratugi. Þurfum að leggja áherslu á góða stjórnarhættiÞann 8. mars næstkomandi verður morgunverðarfundur á Grand Hótel þar sem rætt verður um bætta stjórnarhætti með tilliti til kynjahlutfalls í stjórnun fyrirtækja. Það er einmitt gott að ræða þetta nú þegar aðalfundatíminn er hafinn og mikilvægt að hvetja eigendur fyrirtækja og aðra þá sem geta haft áhrif á stjórnarkjör að huga að góðum stjórnarháttum og kynjahlutfalli í stjórnum fyrirtækja auk annarra þátta, svo sem varðandi þverfaglega breidd og aldursdreifingu, sem skiptir máli. Háskólinn í Reykjavík hefur innan Opna háskólans verið undanfarin ár með námskeið undir heitinu „Ábyrgð og árangur stjórnarmanna“, sem er mikilvægur undirbúningur fyrir alla stjórnarmenn. Í þessu sambandi má benda á leiðbeiningar um góða stjórnarhætti fyrirtækja og þar má meðal annars líta til leiðbeininga OECD, Viðskiptaráðs Íslands, Kauphallar Íslands og Samtaka atvinnulífsins um stjórnarhætti fyrirtækja. Þá ætti einnig að horfa til leiðbeininga um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja sem gefin hafa verið út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Ísland og Samtökum atvinnulífsins og reglna ASÍ um samfélagslega ábyrgar fjárfestingar. Þeir sem eru í forystu í íslensku atvinnulífi verða að byggja upp trúverðugleika á ný. Heiðursfélagar í atvinnulífssamtökum eftir aldarfjórðung verða vonandi konur og karlar í réttum hlutföllum. Aðalatriðið er samt að við höfum hæft fólk til að leiða fyrirtæki okkar í atvinnulífinu og ekki síður í stjórnmálum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 12.07.25 Halldór Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Flugnám - Annar hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Flugnám - Annar hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hver erum við? Hvert stefnum við? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar
Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar