"Höftin voru erfiðasta ákvörðun þingferils míns" 9. september 2012 12:19 Ólöf Nordal
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir atvinnuvegafjárfestingu stjórnarflokkanna en bendir á að fjárfestar sýni samt sem áður áhuga, þrátt fyrir höftin. Varaformenn Sjálfstæðisflokksins og Vinstri Grænna, þær Ólöf Nordal og Katrín Jakobsdóttir, voru gestir í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þar ræddu þær um stöðu mála hér á landi sem og störf Alþingis sem kemur til starfa í næstu viku. Sem kunnugt er mun Ólöf kveðja þingið í vor og flytja til Sviss þegar kjörtímabilinu lýkur. Ólöf sagðist vera afar stolt af sínu starfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og sagði það vera aðdáunarvert að flokkurinn hefði nú jafn gott fylgi og raun ber vitni. Síðustu mánuði hefur Sjálfstæðisflokkurinn mælst með 36 til 38 prósent fylgi í þjóðarpúls Gallups. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú meira fylgi en ríkisstjórnarflokkarnir samanlagt," sagði Ólöf. „Ef flokkurinn heldur þessu fylgi í vetur þá er það auðvitað frábær árangur." Ólöf sagði að átök síðasta þings hafi ekki verið á ábyrgð stjórnarandstöðunnar. Mun frekar hafi upptök hans verið innan ríkisstjórnarinnar og sá þrýstingur sem settur hafi verið á að klára stór mál. „Svo virðist sem að ágreiningur kraumi reglulega undir málum sem nauðsynlega þarf að leysa. En af hverju þessi asi? Af hverju þarf að klára öll þessi mál núna?" Þá sagði Ólöf að atvinnuvegafjárfesting ríkisstjórnarinnar hefði haft slæmar afleiðingar í för með sér. Sannarlega sé rými fyrir fjárfestingu, þrátt fyrir höftin. „Erfiðasta ákvörðun sem tók á mínum þingferli var að setja höftin á," sagði Ólöf. „En það virðist vera áhugi fyrir fjárfestingu þó svo að höftin séu við líði og það verðum við að nýta okkur."
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Sjá meira