1.500 hótelherbergi duga í fjögur til níu ár 26. júní 2012 05:00 Harpa Á meðal þeirra hótela sem rísa eiga í höfuðborginni verður eitt við hlið tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu.fréttablaðið/vilhelm
Á teikniborðinu eru áform um að fjölga hótelherbergjum í Reykjavík um rúmlega 1.500. Þau eru mislangt á veg komin og eru fjarri því nægjanlega mörg til að anna þeirri eftirspurn sem aukinn ferðamannastraumur skapar. Í drögum að greinargerð sem VSÓ Ráðgjöf vann fyrir Reykjavíkurborg um þörf á gistirými í höfuðborginni á árunum 2012 til 2030 segir að líklega þurfi að byggja um 180 til 380 ný hótelherbergi á ári á tímabilinu. Þau áform sem eru á teikniborðinu myndu einungis duga til að anna þeirri eftirspurn í fjögur til níu ár. Langflest áform um uppbyggingu eru í miðborg Reykjavíkur. Við vinnslu greinargerðarinnar aflaði VSÓ Ráðgjöf upplýsinga um áform um fyrirhugaða gististaði í Reykjavík. Upplýsingaöflunin var bundin við þau verkefni sem teljast tiltölulega stórir gististaðir. Samkvæmt þeim upplýsingum sem safnað var saman eru alls tólf stórir gististaðir á teikniborðinu í höfuðborginni. Þeir eru mislangt komnir og tekið er fram í greinargerðinni að óvissa sé um framvindu sumra verkefnanna. Samanlagt eiga þessir stóru gististaðir að fjölga herbergjum um 1.536 talsins. Þar munar mestu um fyrirhugað 343 herbergja hótel í Borgartúni, sem er nú í skipulagi, og 250 herbergja hótel sem mun mögulega rísa við hlið Hörpunnar við Reykjavíkurhöfn. Í greinargerðinni segir að "áform um nýja gististaði koma til með að breytast m.a. í takti við efnahag, fjölda ferðamanna og afkomu í ferðaþjónustu og rekstri gististaða. Ef litið er til fjölgunar ferðamanna sem koma til Íslands er ljóst að eftirspurn eftir gistirýmum mun aukast“. Þar segir einnig að verði árleg fjölgun ferðamanna á bilinu fimm til sjö prósent fram til ársins 2030, og miðað sé við sömu og betri nýtingu gistirýma en er í dag, þá þurfi að fjölga hótelherbergjum um 180 til 380 á hverju ári. Miðað við það þarf að fjölga gistirýmum um 3.600 til 7.500 á tímabilinu. Frá árinu 1990 hefur vöxturinn verið 6,3 prósent árlega að jafnaði. Ef miðað er við þau áform sem eru í gangi er ljóst að áhugi á uppbyggingu gististaða beinist aðallega að miðborginni, eins og sjá má hér til hliðar. thordur@frettabladid.is
Tengdar fréttir Þörf fyrir tvö stór hótel á ári Verði árleg fjölgun ferðamanna á bilinu fimm til sjö prósent á næstu árum mun gistirýmum í Reykjavík þurfa að fjölga um 180 til 380 á hverju ári. Alls gæti því þurft 3.600 til 7.500 ný herbergi á gististöðum fram til ársins 2030. Þetta kemur fram í drögum að greinargerð fyrir þörf á gistirými í Reykjavík á árunum 2012 til 2030 sem VSÓ Ráðgjöf hefur unnið fyrir skipulags- og byggingarsvið borgarinnar. 26. júní 2012 07:00 Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Sjá meira
Þörf fyrir tvö stór hótel á ári Verði árleg fjölgun ferðamanna á bilinu fimm til sjö prósent á næstu árum mun gistirýmum í Reykjavík þurfa að fjölga um 180 til 380 á hverju ári. Alls gæti því þurft 3.600 til 7.500 ný herbergi á gististöðum fram til ársins 2030. Þetta kemur fram í drögum að greinargerð fyrir þörf á gistirými í Reykjavík á árunum 2012 til 2030 sem VSÓ Ráðgjöf hefur unnið fyrir skipulags- og byggingarsvið borgarinnar. 26. júní 2012 07:00