Innlent

Teknir við að flytja 120 kannabisplöntur milli bíla

Tveir karlmenn voru handteknir á bílastæði í austurborginni undir kvöld í gær, þar sem þeir voru að flytja kannabisplöntur á milli bíla.

Þegar lögregla gáði betur, reyndust þeir vera að sýsla þarna með 120 kannabisplöntur og voru þeir handteknir og færðir til yfirheyrslu.

Engar frekari upplýsingar leggja fyrir um málið, í skeyti frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×