Innlent

Ekið á lömb í Víkurskarði

Bíl var ekið á lamb á Grenivíkurvegi, rétt við afleggjarann upp í Víkurskarð í gærkvöldi, og drapst lambið. Þetta var fjórða lambið sem hlýtur þessi örlög á sama stað á skömmum tíma.

Þá var ekið á enn eitt lambið á Víkurskarðsvegi , þarna skammt frá, á sjötta tímanum í morgun og drapst það líka.

Báðir ökumenn tilkynntu lögreglunni á Akureyri um atvikin, en eftir því sem lögreglan best veit, er lausaganga búfjár ekki bönnuð á þessu svæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×