Innlent

Blóðdropinn afhentur í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá afhendingu Blóðdropans í fyrra.
Frá afhendingu Blóðdropans í fyrra.
Blóðdropinn, glæpasagnverðlaun Hins íslenska glæpafélags, verður afhentur í dag. Verðlaunin hlýtur besta glæpasaga ársins 2011 að mati dómnefndar. Bókin verður jafnframt framlag Íslands til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna árið 2013. Afhendingin fer fram á Borgarbókasafninu í Grófarhúsinu en starfsmenn safnsins hafa unnið ötullega að undirbúningi, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Hinu íslenska glæpafélagi.

Þessir eru tilnefndir í ár:

Arnaldur Indriðason fyrir Einvígið.

Eyrún Ýr Tryggvadóttir fyrir Ómynd.

Óttar M. Norðfjörð fyrir Lygarann.

Ragnar Jónasson fyrir Myrknætti.

Sigrún Davíðsdóttir fyrir Samhengi hlutanna.

Sigurjón Pálsson fyrir Klæki.

Stefán Máni fyrir Feigð.

Yrsa Sigurðardóttir fyrir Brak.

Þorlákur Már Árnason fyrir Litháann.

Það var Yrsa Sigurðardóttir sem hlaut Blóðdropann í fyrra fyrir bókina Ég man þig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×