Eiður Smári Guðjohnsen dregur sig endanlega í hlé og sest á skólabekk. Hann á gott og rólegt ár fram undan.

Gylfi Þór Sigurðsson spilar áfram með Tottenham og mun verða betri og eftirsóttari á árinu en nokkru sinni.
Björgvin Páll Gústavsson heldur áfram að verja skotin fyrir okkur. Hann mun spila mest erlendis á árinu en hann skiptir um lið og einnig land, ég sé Þýskaland koma upp í kringum hann. Hann er alls ekki kominn á toppinn drengurinn sá. Í einkalífinu er allt í blóma hjá honum.
Sævar Birgisson skíðakappi keppir á erlendu stórmóti og stendur sig betur en nokkur Íslendingur hefur gert lengi. Hann á framtíðina fyrir sér og virðist sleppa við meiðsli, sem er frábært.
María Guðmundsdóttir fer einnig utan á mót eftir að hafa sigrað á stórmóti hér heima og nær góðum árangri í alpagreinum.
Parið sem sigraði í Dans Dans Dans hefur sig lítið í frammi. Eftir þessi úrslit er almenningur ekki ánægður með keppnina og þyrfti að breyta framkvæmd fyrir næstu keppni, en ég er hrædd um að það verði ekki gert þannig að keppnin líður fyrir það.
Völva 2013: Jörð mun skjálfa.