Innlent

Sérfræðingar sjá um að matur barnanna verði í lagi

JHH skrifar
Jón Gnarr borgarstjóri lagði tillöguna fram.
Jón Gnarr borgarstjóri lagði tillöguna fram.
Borgarráð hefur samþykkt að leggja aukna áherslu á gæði skólamáltíða í leik - og grunnskólunum. Áfram verður eldað í hverjum skóla, en ráðnir verða til starfa sérfræðingar á sviði næringar, matreiðslu og reksturs mötuneyta til nýrrar mötuneytisþjónustu á skóla- og frístundasviði. Þá verður innleiddur þjónustustaðall mötuneyta fyrir öll eldhús leik- og grunnskóla, að því gefnu að hann auki gæði en verði þó hagkvæmur.

Í greinargerð með tillögu Jóns Gnarr borgarstjóra kemur fram að verkefni þjónustudeildar mötuneytismála verði meðal annars að stýra sameiginlegum innkaupum, sinna fræðslu, símenntun og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks mötuneyta, veita ráðgjöf um gerð matseðla, tryggja gæði matar og sinna gæðaeftirliti.

Það er hægt að lesa meira um málið hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×