Innlent

Netflix ekki á leiðinni til Íslands

Netflix opnaði í Svíþjóð í dag og mun á næstu vikum hefja rekstur í Noregi.
Netflix opnaði í Svíþjóð í dag og mun á næstu vikum hefja rekstur í Noregi. mynd/netflix
„Stjórnendur Netflix hafa ekki áhuga á að koma hingað til lands. Engin áform eru um að opna fyrir þjónustuna á Íslandi að svo stöddu."

Þetta segir Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdastjóri Smáís. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar ræddi hann um Netflix en fyrirtækið býður upp á þúsundir kvikmynda og sjónvarpsþátta á 12 dollara á mánuði, eða um 1.500 íslenskar krónur.

Netflix opnaði í Svíþjóð í dag og mun á næstu vikum hefja rekstur í Noregi.

„Landfræðileg staða Íslands leikur stórt hlutverk í ákvörðun Netflix," segir Snæbjörn og bendir á að mikill kostnaður fylgi því að koma fyrir gagnaþjónum hér á landi. „Gjaldeyrismálin eiga einnig hlut að máli."

Snæbjörn segir að það sé sannarlega vilji til staðar meðal Íslendinga að fá Netflix hingað til lands. „Margir skilja ekki af hverju H&M er ekki komið hingað til lands, þetta er svipað með Netflix. Við verðum bara að vera þolinmóð."

Þá segir hann að Netflix myndi sannarlega breyta landslagi afþreyingariðnaðarins hér landi. Samkeppni sé þó af hinu góða.

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×