Erlent

Danir sátu hjá í refsiaðgerðum vegna makríldeilunnar

Danir ákváðu að sitja hjá og greiða ekki atkvæði þegar kosið var um refsiaðgerðir gegn Íslendingum og Færeyingum innan Evrópusambandsins vegna makríldeilunnar.

Fjallað er um málið á vefsíðu börsen. Þar kemur fram í máli Mette Gjordskov matvælaráðherra Danmerkur að hjásetan hafi verið ákveðin með hliðsjón af aðild Færeyinga að deilunni en Færeyingar gætu orðið þeir fyrstu sem refsiaðgerðirnar bitna á.

Gjordskov segir að það sé gríðarlega mikilvægt að ná samkomulagi í makríldeildunni og koma þannig í veg fyrir að makrílstofninn sé ofveiddur. Hún segir jafnframt að mikilvægt sé að refsiaðgerðirnar sem ætlunin er að koma á brjóti ekki gegn alþjóðasamningum WTO þ.e. Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

Samningaumleitanir milli Íslands og Færeyja annarsvegar og ESB hinsvegar halda áfram og Gjordskov telur að fyrirhuguðum refsiaðgerðum verði ekki beitt fyrr en í fyrsta lagi eftir að makrílkvótinn fyrir árið 2013 verður ákveðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×