Smyglari skorinn upp til að hægt væri að ná úr honum efnunum Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. september 2012 15:19 Maðurinn var handtekinn í Leifsstöð.
Fertugur karlmaður situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að tollgæsla stöðvaði för hans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við hefðbundið eftirlit 27. ágúst síðastliðinn. Hann var að koma til landsins frá Kaupmannahöfn. Grunur lék á að maðurinn, sem er þýskur ríkisborgari, væri með fíkniefni innvortis. Lögreglan á Suðurnesjum handtók hann og færði í sneiðmyndatöku, sem sýndi að um mikið magn virtist vera að ræða. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald daginn eftir að hann var handtekinn og á næstu dögum skilaði hann af sér 107 pakkningum sem allar innihéldu kókaín. Við aðra sneiðmyndatöku kom í ljós að ein pakkning til viðbótar sat föst efst í meltingarvegi hans. Hann var því færður á sjúkrahús þar sem gerð var á honum aðgerð til að fjarlægja pakkninguna. Maðurinn reyndist hafa flutt innvortis 1.3 kíló af kókaíni milli landa. Þetta er talið mesta magn fíkniefna sem einstaklingur hefur flutt innvortis í einni ferð. Efni pakkninganna var þykkt og vel til þeirra vandað. Tómar vógu þær um 200 grömm, þannig að samtals hafði maðurinn gleypt 1.5. kíló. Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins og telst hún vera á lokastigi. Ekki hafa fleiri verið handteknir vegna þess. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira