Innlent

Brotist inn í söluturn í Reykjanesbæ

Brotist var inn í söluturn við Hringbraut í Reykjanesbæ í nótt. Þjófarnir voru á bak og burt þegar lögreglu bar að garði og höfðu þeir komist á brott með smáræði af góssi.

Innbrotsþjófarnir voru hinsvegar gómaðir eftir leit lögreglu í bænum og fannst þýfið á sama stað. Mennirnir gista nú fangageymslur og verða yfirheyrði síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×