Enn treystir enginn sér til að meta tjónið BBI skrifar 18. september 2012 13:21
Atvinnuveganefnd fundaði í morgun um veðurhamfarirnar á Norðurlandi í síðustu viku. Enn treystir enginn sér til að meta tjónið sem varð af óveðrinu og ekki er von á neinum tölum fyrr en í fyrsta lagi í október. „Við vorum bara að fara yfir stöðuna með ýmsum aðilum, sveitarstjórnarmönnum, þeim sem koma að raforkumálum á svæðinu og þeim sem koma að búfénaði á svæðinu," segir Jónína Rós Guðmundsdóttir, varaformaður atvinnuveganefndar, um fundinn í morgun. „Margt kom á óvart. Sumt var jákvætt og sumt neikvætt," bætir hún við en fundurinn stóð yfir í um þrjá tíma. Jónína vill lítið gefa upp um efni fundarins í bili en segir þó að langt sé í að tölur um heildartjónið á landsvæðinu liggi fyrir. „Það treystir sér enginn til að meta tjónið að svo stöddu. Það er verið að safna upplýsingum en það verða engar upplýsingar tilbúnar fyrr en í október," segir hún. Enn eru þúsundir fjár á fjalli og bændur vita ekki gjörla hver afföllin verða. Girðingar liggja undir snjó og eru eflaust víða ónýtar. Af þessum sökum er erfitt að átta sig á umfangi tjónsins. „Það væru kannski helst þeir hjá Rarik eða Landsneti sem sjá um rafmagnið sem gætu áætlað tjónið en þeir vilja heldur ekki gera það í bili," segir Jónína. Umræður um fárviðrið og afleiðingar þess hefjast á Alþingi klukkan tvö í dag og þar munu þingmenn ræða hvernig best sé að bregðast við.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira