Eina vegagerðin næstu tvö ár Kristján Már Unnarsson skrifar 18. september 2012 20:30
Lægsta boð í lagningu nýs Álftanesvegar reyndist tvöhundruð milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Þetta er stærsta verk sem boðið hefur verið út í vegagerð á Reykjavíkursvæðinu í fjögur ár og eina stóra verkið sem þar verður unnið næstu tvö árin. Verkið var áður boðið út árið 2008 en þá slegið af vegna hrunsins. Leggja á nýjan fjögurra kílómetra veg frá gatnamótum Hafnarfjarðavegar í Engidal áleiðis að Bessastöðum, með einum mislægum gatnamótum, áningarstað í Gálgahrauni og tvennum undirgöngum fyrir göngufólk. Þetta er stærsta verk sem Vegagerðin hefur boðið út á Reykjavíkursvæðinu frá því í ársbyrjun 2008 og þegar tilboðsfrestur rann út klukkan 14 í dag lágu fyrir fimm tilboð, öll undir kostnaðaráætlun sem var upp á 865 millljónir króna. Loftorka í Garðabæ bauð lægst, 659 milljónir króna, um 76 prósent af áætlun, en næstlægsta boð, frá ÍAV, var 87 milljónum hærra. Íbúar í nágrenninu hafa barist gegn lagningu vegarins, síðast með undirskriftasöfnun í sumar, en Vegagerðin segir umferðaröryggi kalla á nýjan veg. Framkvæmdaleyfi liggur fyrir og er stefnt að því að framkvæmdir hefjist á næstu vikum. Verkinu á að vera að fullu lokið fyrir mitt sumar 2014. Í viðtali í fréttum Stöðvar 2 sagði Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar suðvestanlands, að þetta væri eina stóra verkið sem þar væri áformað næstu tvö ár. Tilboð í Álftanesveg Kostnaðaráætlun 865,0 m.kr. 1. Loftorka 659,2 m.kr. 76,2% 2. ÍAV 746,1 m.kr. 86,3% 3. Urð og Grjót 799.6 m.kr. 92,4% 4. Ístak 822,0 m.kr. 95,0% 5. Suðurverk 844,1 m.kr. 97,6%
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira