Fara ríðandi milli Látrabjargs og Gerpis Kristján Már Unnarsson skrifar 30. júní 2012 11:30 Hestamennirnir Magnús Pétursson, Sigurður Sævar Sigurðsson, Ólafur Finnbogason og Pétur Óli Pétursson. Mynd/Hildur Eiríksdóttir
Fjórir hestamenn og sextán hestar hefja í dag leiðangur milli Látrabjargs og Gerpis, vestasta og austasta odda Íslands. Þeir sem þannig ætla ríðandi þvert yfir landið eru bræðurnir Magnús Pétursson ríkissáttasemjari og Pétur Óli Pétursson, Ólafur Finnbogason og Sigurður Sævar Sigurðsson. Leiðinni skipta þeir í tvo áfanga. Sá fyrri er frá Látrabjargi að Vindheimum í Skagafirði, um 400 kílómetrar, og áætla þeir að vera tólf daga á þeirri leið. Síðari áfangann, úr Skagafirði til Austfjarða, hyggjast þeir geyma til næsta sumars. Þeir lögðu upp frá Breiðavík í morgun til Bjargtanga en síðan ríða þeir austur með Látrabjargi til Keflavíkur og ljúka fyrstu dagleið að Saurbæ á Rauðasandi. Annan daginn verður riðið frá Rauðasandi, um gamla þjóðleið um Skóg, að Haga á Barðaströnd, þriðja daginn um Reiðskörð að Brjánslæk og Flókalundi, fjórða daginn um Þingmannaheiði og niður í Vattarfjörð og Skálmarfjörð, fimmta daginn upp á Klettsháls, norður fyrir Reiphólsfjöll og niður í Þorskafjörð og sjötta degi lýkur í Saurbæ í Dölum. Þaðan liggur leiðin næstu dagana yfir í Sælingsdal, um Laxárdalsheiði og Sölvamannagötur í Hrútafjörð, um Miðfjörð, Víðidal, Vatnsdalshóla, Húnavelli, Svínavatn og að Auðkúlurétt. Síðasta dagleiðin þann 11. júlí liggur yfir brúna yfir Blöndu við Löngumýri og að Húnaveri, yfir Vatnsskarð niður í Skagafjörð og loks að Vindheimum.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira