Innlent

Fótbrotin á Esjunni

Laust fyrir miðnætti í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um slasaða konu á Esjunni.

Björgunarsveitir fóru á vettvang til aðstoðar en konan reyndist vera fótbrotin á hægri sköflungi.

Var hún flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild. Þá voru fjórir ökumenn handteknir í höfuðborginni í nótt grunaðir um ölvun við akstur, einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Einn ökumaður sem var stöðvaður í nótt reyndist vera próflaus og var það að auki með fíkniefni meðferðis. Hann var þó ekki grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna.

Tilkynnt var um eitt innbrot í nótt en það átti sér stað í Hafnarfirði, ekki liggur fyrir hverju var stolið.

Þá sinnti lögreglan ýmsum útköllum í nótt en mörg af þeim höfðu að gera með skemmtanahöld í heimahúsum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×