Innlent

Andarungaleikskóli í Borgarfirði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hann var fagur ungahópurinn sem Guðbrandur rakst á.
Hann var fagur ungahópurinn sem Guðbrandur rakst á.
Það var fagur hópur andarunga sem hann Guðbrandur Benediktsson rakst á þegar hann var staddur í Borgarfirðinum í gær. Um var að ræða brandandarunga og taldi Guðbrandur 41 unga í hópnum.

Gunnar Þór Hallgrímsson fuglafræðingur segir það vel þekkt að brandendur slái saman í hópa. „Maður sér oft að það er kominn hópur saman með ungahersingu með sér," segir Gunnar í samtali við Vísi. Hann segist ekki hafa skýringu á því hvers vegna endurnar geri þetta. „Þetta gerist hjá öðrum öndum líka, eins og til dæmis æðarfuglinum. Þá sér maður nokkrar kollur saman og svo kemur ungastrollan á eftir," segir Gunnar. Aðspurður segir Gunnar að það sé vel hægt að sjá þetta fyrir sér sem nokkurskonar andarungaleikskóla.

Þegar Guðbrandur sá endurnar í Borgarfirðinum kom honum i hug meðfylgjandi vísa.

Kann einhver kolluna að toppa

ungarnir á bakkanum skoppa.

Brandönd í næði

nær sér í fæði.

Nærir með því unga kroppa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×