Innlent

Fyrsta kartöfluuppskeran hálfum mánuði fyrr en vant er

BBI skrifar
Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Fyrsta kartöfluuppskeran er komin í hús á Auðsholti í Hrunamannahreppi. Uppskeran fer beint á bændamarkað á Flúðum.

Kartöflurnar voru settar niður 26. apríl og voru teknar upp á Jónsmessunni.

„Þetta er bara eitthvað smávegis. Einhver nokkur hundruð kíló," segir Ásdís Bjarnadóttir hógvær en hún er bóndi á Auðsholti. Henni tókst að töfra þessar kartöflur óvenjulega snemma uppúr jörðinni m.a. með því að leggja heitar lagnir niður í kartöflugarðinn. Sjálf segir hún þó að veðrið undanfarið hafi spilað stærsta rullu.

„Það er náttúrlega búið að vera einstaklinga hlýtt hér í kring og þá nær maður þessu fyrr upp," segir hún.

Ásdís segir að þau séu líklega um hálfum mánuði fyrr en almennt tíðkast, þó hún geti ekki fullyrt um það nákvæmlega. „Fyrst þegar ég byrjaði að framleiða kartöflur fyrir um þrjátíu árum þá fannst manni bara gott að byrja að selja kartöflur í kringum 20. júlí," segir Ásdís. Því verður enn nokkur bið á því að nýjar kartöflur komi í almenningsverslanir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×