Innlent

Einar Örn: Borgaði 5.900 krónur fyrir sætið

Boði Logason skrifar
Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins.
Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins.
„Ég tel mig ekki hafa verið að brjóta siðreglurnar, mér var ekki boðið sem borgarfulltrúa," segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður menningar- og ferðmálanefndar Reykjavíkurborgar.

Í Útvarpsfréttum Ríkisútvarpsins var greint frá því að Einar Örn hafi þegið boðsferð WOW air í jómfrúarferð félagsins til Parísar á fimmtudag í síðustu viku. Í siðareglum borgarfulltrúa segir að kjörnir fulltrúar þiggi ekki gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá viðskiptamönnum eða þeim sem leita eftir þjónustu Reykjavíkurborgar nema um sé að ræða óverulegar gjafir.

Einar Örn segir í samtali við Vísi að Skúli Mogensen, stjórnarformaður WOW air, sé vinur sinn og hann hafi boðið sér og konu sinni í ferðina. „Og ég borgaði fyrir sætin mín sjálfur - 5.900 krónur fyrir sætið fram og til baka," segir Einar Örn.

„Ég heiti Einar Örn Benediktsson og ég á mér annað líf en líf borgarfulltrúa. Ég skil alveg afhverju siðareglurnar voru settar - en í þessu samhengi er ekki verið að sækjast eftir þjónustu til Reykjavíkurborgar. Þessi ferð hefur ekkert með það sem WOW air er að gera," segir hann.

Hann bendir á að ef Reykjavíkurborg þyrfti að láta gera útboð í flugferð þá færi það í ákveðið útboðsferli sem hann kæmi ekki nálægt.

Auk Einars Arnar voru Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu og Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs, í ferðinni til Parísar. Ásamt fulltrúum fjölmiðla, ferðaskrifstofa og vina stjórnenda WOW air.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×