Innlent

"Hann hafði ekki heimild til að kasta peningum út um gluggann“

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Hæstiréttur Íslands
Hæstiréttur Íslands
Björn Þorvaldsson saksóknari gagnrýndi dóm meirihluta Héraðsdóms Reykjavíkur í Exeter málinu mikið í málflutningi fyrir Hæstarétti og sagði niðurstöðuna byggja á misskilningi. Björn fór fram á fjögurra og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi yfir hinum ákærðu í málinu.

„Telur ákæruvaldið óskiljanlegt að dómarar í sama máli geti komið að sitt hvorri niðurstöðu um atriði sem fyrir liggur í málinu," sagði Björn um niðurstöðu meirihlutans.

Málið snýst um 1,1 milljarðs króna lán sem Byr veitti Exeter Holding í tveimur hlutum, október og desember 2008, eftir bankahrunið, til þess að kaupa 1,8 prósenta stofnfjárhlut í Byr. Seljandi bréfanna var MP banki en bankinn hafði fengið þau meðal annars eftir veðkall á eignarhaldsfélagið Húnahorn sem var í eigu nokkurra stjórnenda Byrs, þ.ám. Ragnars Zophoníasar Guðjónssonar, sparisjóðsstjóra. Aðrir seljendur voru stjórnarmenn í Byr, þeir Jón Þorsteinn Þorsteinn Jónsson og Birgir Ómar Haraldsson.

Sakaðir um að bjarga sjálfum sér á kostnað sparisjóðsins

Björn fjallaði um niðurstöðu meirihlutans í þeim hluta málsins er lýtur að lánareglum Byrs og hvort þær hafi verið brotnar. „Meirihluti virðist túlka þessa heimild þannig að hann (Ragnar) hafi mátt lána hverjum sem er allt að einn og hálfan milljarð króna," sagði Björn.

Ákæruvaldið telur að Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri og Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður, hafi misnotað aðstöðu sína með lánum til Exeter Holding og Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, beri ábyrgð á þessu broti sem hlutdeildarmaður. Með lánum Byrs til Exeter eftir hrun var MP banki í raun skorinn niður úr snörunni, ásamt þeim Ragnari og stjórnarmönnum í Byr sem áttu stofnfjárbréf í Byr. Á þeim tíma sem lánið var veitt höfðu bréfin hrapað í verði og það verð sem greitt var fyrir bréfin var langt yfir markaðsverði.

Í hnotskurn snúast meint brot ákærðu í málinu um að þeir hafi bjargað sjálfum sér á kostnað sparisjóðsins.

Björn vakti athygli Hæstaréttar á því að í skýrslutökum hjá lögreglu hafi Ragnar alls ekki talið sig hafa heimild til þess að lána jafn háar fjárhæðir og meirihluti Héraðsdóms virðist hafa gengið út frá. „Ég myndi ekki líta svo á, ég mundi telja að stjórnin hefði það," hafði Björn eftir Ragnari.

Það var enginn að gæta hagsmuna Byrs sparisjóðs

„Augljóslega hlaut hann (Ragnar Z. innsk.blm) að hafa hag sparisjóðsins að leiðarljósi í lánveitingum, nema hann gæti sýnt fram á að hagsmunir sparisjóðsins stæðu til þess að víkja frá lánareglum. Heimildin gat ekki verið til þess að veita lán í eigin þágu án fullnægjandi veða. Hann hafði ekki heimild til að kasta peningum út um gluggann. Það liggur í augum uppi," sagði Björn.

Hann sagði að ákærðu hefðu haft beina fjárhagslega hagsmuni af því að lána peningana. „En það var enginn að gæta hagsmuna Byrs sparisjóðs. Hverjir gátu mögulega verið að gæta hagsmuna hans?"

Saksóknari fjallaði líka um ábyrgð Styrmis, sem var sýknaður af bæði minnihluta og meirihluta Héraðsdóms. „Hann hafði mikilla hagsmuna að gæta sem forstjóri MP banka. Ákærða Styrmi hlaut að vera ljóst að um refsivert brot væri að ræða. Hann var ekki óvirkur þátttakandi. (...) Honum hlaut að vera ljóst að verið væri að koma tjónshættu yfir á Byr. Honum hlaut að vera ljóst að engir viðskiptalegir hagsmunir lágu að baki því að lána 800 milljónir króna með aðeins stofnfjárbréfin að veði," sagði Björn

Undir lok málflutningsræðu sinnar vék hann að ákvörðun refsingar. Hann sagði að þeir fjármunir sem væru til umfjöllunar í málinu væru án hliðstæðu í efnahagsbrotamáli hér á landi. Hann fór fram á fjögurra og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi yfir Ragnari og Jóni Þorsteini og sömu refsingu yfir ákærða Styrmi, en tveggja til fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi yfir Styrmi ef það yrði niðurstaða réttarins að hans þáttur væri gáleysisbrot. thorbjorn@stod2.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×