Lífið

Hinsta Sálarballið á Nasa 5. maí

HINSTA SÁLARGIGGIÐ Á NASA FER FRAM ANNAÐ KVÖLD.
HINSTA SÁLARGIGGIÐ Á NASA FER FRAM ANNAÐ KVÖLD.
Vart hefur farið framhjá skemmtanaglöðum Reykvíkingum að samkomuhúsið Nasa mun brátt heyra sögunni til, alltént ef áform um byggingu hótels á reitnum ná fram að ganga.

Núverandi rekstraraðili mun í öllu falli hverfa frá í júníbyrjun og laugardaginn 5. maí verður HINSTA SÁLARGIGGIÐ Á NASA. Öllu verður til tjaldað, flugeldarnir dregnir fram, Sálverjar munu leika við hvern sinn fingur og öll sín þekktustu lög.

Í nýútkominni og skemmtilegri skáldsögu Sólveigar Jónsdóttur, KORTERI, segir af lífi og örlögum fjögurra vinkvenna í Reykjavík. Þær stöllur rata víða á djamminu, m.a. á Sálarball á Nasa, hvar ein söguhetjan dásamar hljómborðs- og saxófónleikara bandsins, Jens Hansson, og gerir hosur sínar grænar fyrir honum.

Í tilefni af hinsta Sálarballi á Nasa, náðist samkomulag við útgefanda Korters um að láta 15 heppnum Sálaráhangendum í té eintak af bókinni, sem dagsett verður og áritað af höfundi sjálfum. Áhugasamir ballgestir skrá sig á lista í anddyri Nasa á laugardaginn, en á mánudaginn verða af handahófi valin 20 nöfn af listanum og fá viðkomandi bókina senda heim til sín.

Nöfnin vinningshafa verða einnig birt á vefsíðu Forlagsins og á Fésbókarsíðu Sálarinnar.

Það er annars títt af Sálinni að sveitin hélt í hljóðver í vikunni og tók upp þrjú ný og hressileg lög. Fyrsta laginu verður sleppt út á öldur ljósvakans um næstu mánaðarmót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.