Skemmtiferðaskipin brjóta land Viðeyjar 22. september 2012 11:00 Viðeyingafélagið sendi margar myndir til stjórnar Faxaflóahafna til að sýna fram á landeyðinguna í Viðey. Mynd/Viðeyingafélagið
Viðeyingafélagið segir vélarafl sífellt fleiri og stærri skemmtiferðaskipa auk hafnarframkvæmda og dýpkunar Viðeyjarsunds stuðla að niðurbroti eyjunnar. Hafnarstjóri segir bæði land og minjar í hættu. Verkefnið sé að hefta landbrot. Stjórn Viðeyingafélagsins hefur biðlað til Faxaflóahafna að fyrirbyggja landbrot við suður- og austurströnd Viðeyjar. Í bréfi Viðeyingafélagsins eru leiddar líkur að því að tíðar komur stórra skemmtiferðaskipa eigi þátt í landbrotinu á Viðey. Íslensku kaupskipin séu smáfleytur í samanburði við hin erlendu risaskip. „Vélstjórar á kaupskipunum taka undir það álit okkar að vélarkraftur skemmtiferðaskipanna hafi niðurbrotsáhrif á strönd eyjarinnar,“ segir í bréfi stjórnarinnar sem vísar til þess að á kynningarfundi fyrir nokkrum mánuðum hafi Gísli Gíslason hafnarstjóri skýrt frá því að komum skemmtiferðaskipa myndi fjölga verulega á næstu árum. Skipin myndu þar að auki stækka; fara úr því að vera tvö hundruð metrar á lengd í það að vera þrjú hundruð metrar. „Að gefnu tilefni vakti Örlygur Hálfdanarson máls á landbroti á suður- og austurströnd Viðeyjar sem hefði haldist í hendur við dýpkun Viðeyjarsunds, uppbyggingu Sundahafnar og aukna skipaumferð,“ segir Viðeyingafélagið. Auk landbrotsins er vakin athygli á ástandi gamla hafnarbakkans í Viðey sem sé fyrsta hafskipahöfnin við Faxaflóa. „Í sjálfu sér verður ekkert fullyrt um ástæður landbrots við Viðey, sem hefur staðið lengi, enda kemur það sjónarmið fram í erindi Viðeyingafélagsins að orsakir landbrots eru fleiri en ein,“ segir Gísli hafnarstjóri. Aðalatriðið sé hins vegar að það sé rétt hjá félaginu að landbrot eigi sér stað á eynni austanverðri auk þess sem minjar sæta ágangi sjávar. „Verkefnið er því að hefta landbrotið,“ segir Gísli. „Reykjavíkurborg er eigandi eyjunnar, en það er sjálfsagt mál að Faxaflóahafnir í samvinnu við Reykjavíkurborg láti skoða hvernig vinna skuli gegn landbrotinu. Það er fyrsta skrefið í því að koma til móts við ábendingar Viðeyingafélagsins og Örlygs Hálfdánarsonar, sem bent hefur á vandann um langa hríð.“ Viðeyingafélagið kveðst ekki gera lítið úr því að auk vélarafls skipanna þá valdi margir samverkandi þættir álagi á bakka Viðeyjar. „En þar sem ekki virðast vera neinar áætlanir uppi um heildarstrandvörn í Sundunum og þróun landbrotsins talar stöðugt sínu máli finnst okkur að hafnarstjórn ætti að láta náttúruna njóta vafans,“ segir stjórn Viðeyingafélagsins sem er félag brottfluttra Viðeyinga og afkomenda þeirra. „Brottfluttir Viðeyingar hafa um árabil bent á afleiðingar sem þeir telja að hægt sé að rekja til dýpkunar Viðeyjarsunds og hafnargerðar Reykjavíkurmegin en enga áheyrn hlotið.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Sjá meira