Auðlindir skýr eign þjóðar og arður af þeim sýnilegur 23. júní 2012 06:45 Auðlindanefnd vill áréttingu á því að auðlindir, þar með talið vatnsafl, séu þjóðareign. Arðurinn af þeim verði sýnilegur og einnig hvernig honum verði ráðstafað. fréttablaðið/vilhelm
Stjórnvöld eru hvött til að færa alla umsýslu með auðlindum þjóðarinnar á eina hönd. Þá ber að stofna auðlindasjóð til að tryggja að auðlindaarðurinn og meðferð hans verði sýnileg og auðlindareikning til að arðurinn sé aðskilinn frá öðrum fjármálum ríkisins. Þetta er á meðal tillagna sem finna má í skýrsludrögum auðlindastefnunefndar sem kynnt voru á málþingi í gær. Þar kemur fram að besta tryggingin fyrir því að arður af nýtingu auðlindaþjóðarinnar verði sýnilegur, og honum ráðstafað með sýnilegum hætti, sé ákvæði í stjórnarskrá. Þá leggur nefndin til að ákvæði um ævarandi eign þjóðarinnar á auðlindum verði í stjórnarskrá, líkt og auðlindanefnd árið 2000 og stjórnlagaráð hafa einnig lagt til. „Þegar farið er yfir alla skýrslugerð og stefnumótun á þessu sviði undanfarin ár, sem allir helstu sérfræðingar landsins á sviði auðlindamála hafa komið að, þá eru mjög einsleit skilaboð sem sjást út úr því. Það eru þau sömu grundvallaratriði og við erum að reyna að draga fram,“ segir Arnar Guðmundsson, formaður nefndarinnar. „Ef við ætlum að draga einhvern lærdóm af þeirri vinnu sem unnin hefur verið undanfarin ár, þá held ég að það sé spurningin um að reyna að byggja auðlindastefnu sem byggir á því að búa til grundvallarreglur um hvernig á að úthluta, með hvaða skilyrðum og hvernig arðinum er skipt. Þetta er alveg gegnumgangandi.“ Nefndin leggur til að komið verði á fót auðlindareikningi sem verði hluti af ríkisreikningi. Í þeim tilfellum þar sem um endurnýjanlegar auðlindir er að ræða er ekki gert ráð fyrir sjóðssöfnun, heldur verði arðinum úthlutað af auðlindareikningnum á sýnilegan máta. Með því sé hægt að tryggja sýnileika arðsins og meðferð hans. Í tilviki óendurnýjanlegra auðlinda er lagt til að sá hluti tekna á auðlindareikningi fari í auðlindasjóð, til að tryggja hagsmuni komandi kynslóða sem ekki njóta arðs af núverandi nýtingu auðlindanna. Þetta er meðal annars gert að fyrirmynd norska olíusjóðsins. Það eigi til dæmis við um mögulega gas- eða olíuvinnslu. Nefndin telur einnig mikilvægt að sameina stjórnsýslu allra auðlinda þjóðarinnar og koma á fót skrifstofu auðlindaumsýslu. „Við köllum eftir því að ríkið, sem er umsjónaraðili fyrir hönd þjóðarinnar, reyni að samræma stjórnsýsluna á þessu sviði og reyni að færa þetta saman, en umsýslan með auðlindum sé ekki dreifð.“kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Sjá meira