Ráðherra vill leysa laumufarþegafaraldur 21. september 2012 07:00 Hælisleitendur sem bíða afgreiðslu sinna mála hérlendis hafa margreynt að lauma sér í Ameríkuskip Eimskipafélagsins. Mynd/Eimskip
Innanríkisráðuneytið hefur óskað eftir því að siglingaverndarráð komi saman til að fara heildstætt yfir mál sem tengjast ítrekuðum tilraunum erlendra manna til að brjótast inn á hafnarsvæði Eimskips og um borð í skip þess. „Innanríkisráðherra átti á mánudag samráðsfund með fulltrúum Eimskipafélags Íslands hf., Siglingastofnunar Íslands, ríkislögreglustjóra, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu og Faxaflóahafna,“ segir í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu sem kveður tilefni fundarins hafa verið að ræða ábendingar í bréfi Eimskipafélagsins um háttalag fyrrnefndra útlendinga. Eins og fram kom í Fréttablaðinu fyrr í þessum mánuði óttast Eimskip að bandarísk stjórnvöld kunni að grípa til þess að banna siglingar frá Íslandi til Bandaríkjanna komist laumufarþegar héðan alla leið vestur um haf. Um er ræða hælisleitendur sem hingað hafa komið en vilja komast til Ameríku. „Ljóst er að um er að ræða þröngan hóp einstaklinga sem reynir ítrekað að brjótast inn á hafnarsvæðið í þeim tilgangi að komast um borð í skip vestur um haf. Niðurstaða fundarins varð sú að mikilvægt væri að þeir aðilar sem að málunum koma hafi náið samstarf um það hvernig leysa mætti þann vanda sem hér er við að etja,“ segir innanríkisráðuneytið. Kveðst ráðuneytið munu hafa samráð við hlutaðeigandi og Útlendingastofnun til að ákveða næstu skref þegar tillögur siglingaráðs liggja fyrir. - gar
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Loka vefsíðum tímabundið í öryggisskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Sjá meira