Tekjuskattar óbreyttir 2013 25. júní 2012 07:00 Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra.
Tekjuskattur á einstaklinga og skattar á fyrirtæki verða ekki hækkaðir á næsta ári. Krafa verður gerð um eins prósents niðurskurð í ríkisrekstri. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra segir það eðlilega aðhaldsaðgerð. Oddný segir að staðið verði við áætlun um ríkisbúskap 2012 til 2015, en þar er gert ráð fyrir eins prósents aðhaldi. „Það er ekki hægt að tala um niðurskurð þegar við erum með rétt innan við eitt prósent af veltunni í aðhald. Það má í raun segja að svo ætti að vera í eðlilegu árferði, til að rýma til fyrir öðrum verkefnum og halda ríkisbúskapnum á þeim stað sem við ráðum við. Gert var ráð fyrir því í áætluninni og við stöndum við það." Ríkisstjórnin mun einnig standa við yfirlýsingar í skattamálum, að sögn fjármálaráðherra. „Það er ekki gert ráð fyrir að tekjuskattur einstaklinga hækki eða almennur skattur á fyrirtæki. Svo verður ekki. Við erum að setja þetta saman núna og það er öruggt að þessir stóru póstar hækka ekki." Oddný þvertekur þó ekki fyrir að farið verði í einhverjar breytingar á öðrum sköttum, en vill ekki tjá sig frekar um það á meðan vinna við fjárlögin stendur yfir. Samkvæmt breyttum þingsköpum verða fjárlögin fyrsta mál á dagskrá Alþingis þegar það kemur saman í haust, 11. september. Þá mun fjármálaráðherra leggja fram frumvarp um breytta umgjörð opinberra fjármála í haust. Oddný væntir þess að hún verði fjármálaráðherra áfram, en nokkur óvissa hefur ríkt um hvernig þeirri stöðu verður skipað. Oddný var sett í embættið um áramótin þegar farið var í hrókeringar í ríkisstjórn, en tekið fram að ekki væri víst að sú skipan héldist lengi. Oddný segir þau mál enn óviss, þó vilji hennar standi til áframhaldandi setu í stóli fjármálaráðherra. Fjármálaráðherra hefði kosið að veiðigjöldin hefðu ekki verið lækkuð í meðförum Alþingis. Hún segir Íslendinga geta verið stolta af þeirri kerfisbreytingu. Alþingiskosningar verða eftir tæpt ár og Oddný segir mikilvægt að jafnaðarmenn verði áfram við stjórnvölinn á næsta kjörtímabili. „Jafnaðarmenn eru ekki bara flinkir í því að taka til eftir óreiðu og óráðsíu íhaldsmanna, en við höfum sýnt að við getum gert góða hluti þar. Við eigum líka að fá tíma til þess að njóta árangurs þess erfiðis, að minnsta kosti á næsta kjörtímabili. Það skiptir mjög miklu máli."- kóp
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Sjá meira