Tvær háar brýr yfir Elliðaár 25. júní 2012 06:00 Eins og þær litu út í vinningstillögunni, en strax í maí átti frekari útfærsla á tillögunni að hefjast. Mynd: Teiknistofan Tröð
Tvær brýr fyrir gangandi vegfarendur og hjólreiðamenn munu rísa við Elliðaárósa á næstunni. Burðarrammar þeirra munu ná átján metra upp í loftið og vera 40 metra langir. Borgin og Vegagerðin standa að framkvæmdinni og hafa veitt 160 milljónir króna í verkið. Haldin var samkeppni um hönnun brúnna fyrr í ár, en í dómnefndarálitinu er vinningstillagan sögð „einföld, frumleg og djarfleg“. Í áliti dómnefndarinnar segir að mannvirkið geti orðið ákveðið kennileiti, vakið áhuga fólks á svæðinu og stuðlað að aukinni notkun svæðisins til útivistar. Ámundi Brynjólfsson, formaður dómnefndarinnar, segir brýrnar hluta af stærri betrumbótum á samgöngukerfi þessa svæðis. „Brýrnar eru hluti af hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar sem var samþykkt í borgarstjórn fyrir nokkru síðan og hefur það að markmiði að gera hjólreiðar að almennum samgöngumáta. Framkvæmdirnar við Elliðaárnar stytta vegalengdina frá Grafarvogi og Mosfellsbæ niður í miðbæ um 700 metra.“ Ámundi segir að dómnefndinni hafi fundist brúin passa vel á þessum stað. „Þetta þykir áberandi en ekki yfirþyrmandi í umhverfinu.“ Karl Sigurðsson, formaður umhverfis- og samgönguráðs, segist ánægður með tillöguna. „Mér finnst hún mjög fín, ég er mjög hrifinn af þessari vinningstillögu. Mér fannst reyndar tillögurnar í þremur efstu sætunum mjög góðar. Það hefur verið erfitt fyrir dómnefndina að velja.“ Gert er ráð fyrir að verkið verði sett í útboð í september og að verklok verði í maí 2013. katrin@frettabladid.is
Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Innlent Fara í aðgerðir fáist ekki svör Innlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Handtekinn vegna stunguárásarinnar Innlent Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent Fleiri fréttir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Sjá meira
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent