Sparneytin ökutæki þyngja pyngjuna Lillý Valgerður Pétursdóttir. skrifar 25. júní 2012 19:21 Orkustofnun bar saman eyðslu Toyota Prius og Toyota Avensis. Mynd/Vilhelm
Ökumenn geta sparað sér á annað hundrað þúsund krónur á ári með því að velja sér sparneytnari bíla. Þetta segir framkvæmdastjóri Orkuseturs Orkustofnunar og hann bendir á að þetta sé hægt með því að velja sambærilegan bíl. Orkusetur hefur tekið í notkun á heimasíðu sinni nýjar reiknivélar sem hjálpa ökumönnum að átta sig betur á kostnaðinum við að aka á milli staða. Þar sem elsneytisnotkun bíla er mjög mismundandi þá er reiknivélin útbúin þannig að slegið er inn bílnúmer til að sjá nákvæmlega hversu hversu langt hægt er að aka á tilteknum bíl. Orkusetur bar eyðslu tveggja sambærilegra fólksbíla saman fyrir fréttstofuna. Reiknivél hennar sýnir að í dag dugir bensínlíterinn 26 kílómetra í innanbæjarakstri ef ekið er á Toyota Prius en aðeins 11 kílómetra ef ekið er á Toyota Avensis. Þá þarf ökumaður á Toyota Priusnum að greiða tæpar 7000 krónur fyrir eldsneyti ef hann ekur frá Reykjavík á Akureyri og tilbaka. Ökumaður hins bílsins þarf hinsvegar að borga hátt í ellefu þúsund krónur fyrir eldsneytið. Framkvæmdastjóri Orkuseturs segir reiknivélarnar hjálpa fólki að átta sig betur á hversu mikið bensín mismunandi bifreiðar nota. „Það hefur í raun og veru aldrei verið meiri munur en núna hjá bílaframleiðendum á eldsneytisneyslu nánast sambærilegra bifreiða. Það er ekki bara fólk sem spara heldur þjóðarbúið og ef að við öll tökum í raun og veru réttari ákvarðanir og förum að velja elsneytisnýtnari bifreiðar þá getur þjóðarbúið farið að spara þegar að öll breytingin er komin í gegn í flotanum tugi milljarða í gjaldeyri á ári," segir Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs. Sigurður segir hægt að spara á annað hundrað þúsund með því að velja sér sparneytnari bíl. Þannig sýnir reiknivél Orkuseturs að ökumaður Priusins eyðir 113 þúsund krónum minna í eldsneyti á ári en ökumaður hins bílsins. „Það er mikill munur bara á venjulegum bifreiðum. Þú þarft ekki að fara úr stórum bifreiðum í einhvern pínulítinn til að ná fram eldsneytisparnaði þú þarft bara að velja rétta bílinn í hverjum stærðarflokk," segir Sigurður.
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira