Mannréttindi að fá texta á íslenskt efni BBI skrifar 11. september 2012 11:26 Félagar í félagi heyrnarlausra. Mynd úr safni. Mynd/Haraldur Guðjónsson
Félagsmenn Heyrnarhjálpar, félags heyrnarskertra, setja textun á íslensku sjónvarpsefni fram sem eitt helsta réttlætis- og baráttumálefni heyrnarskertra hér á landi. Heyrnarhjálp er 75 ára á þessu ári og í nýútkomnum afmælisbæklingi miða tvær greinar að þessu málefni. Þar er sagt að efling textunar verði eitt æðsta markmið afmælisársins. „Það eru mannréttindi að fá að fylgjast með, því viljum við sjá texta á allt íslenskt sjónvarpsefni," segir í bæklingnum. Þar kemur fram að textinn sé heyrnarskertu fólki jafnmikilvægur og hljóðið er þeim sem heyra. Þar sem sjónvarpið á að gegna fræðslu- og upplýsingahlutverki sé textunin nauðsynleg til að opna heyrnarskertum aðgengi að útsendingunum.Heyrnartæki. Textunin myndi gagnast öllum sem eiga við heyrnarskerðingu að stríða.Eins og er textar Ríkisútvarpið nær allar útsendingar sem ekki eru beinar. Þannig geta allir nálgast texta á íslenska þætti og kvikmyndir á síðu 888 í textavarpinu. Heyrnarskertir vilja að þjónustan taki líka til frétta og viðtalsþátta upp að því marki sem slíkt er mögulegt. Samkvæmt upplýsingum frá RÚV hefur komið til skoðunar að texta fréttaútsendingar. Það hefur enn ekki verið gert enda kostnaðarsamt og tæknilega flókið. Heyrnarskertir eru um 10 - 15% þjóðarinnar. Því má ætla að textunin myndi gagnast um 48 þúsund manns á landinu, sem hafi að sama skapi takmarkaðan aðgang að upplýsingum í sjónvarpsútsendingum eins og stendur. Í bæklingi Heyrnarhjálpar segir að það sé lögbundið hlutverk RÚV að reka sjónvarpsþjónustu fyrir alla landsmenn. Því hlutverki verði ekki náð fyrr en allt íslenskt efni verður textað. Þá er einnig talið eðlilegt að einkareknar stöðvar texti að minnsta kosti fréttir og fréttatengt efni. „Heyrnarskertir þurfa aðgengi að fréttum og ýmsum upplýsingum, til jafns á við heyrandi. Þeir hafa líka áhuga á að fylgjast með þjóðfélagsumræðu," segir Ingólfur Már Magnússon, stjórnarmaður í Heyrnarhjálp.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira