Krefur Agnesi um afsökunarbeiðni og miskabætur SB skrifar 31. janúar 2011 16:46
Lögmaður Inga Freys Vilhjálmssonar, blaðamanns á DV, Vilhjálmur Vilhjálmsson, sendi Agnesi Bragadóttur, blaðamanni Morgunblaðsins, bréf í dag. Í því eru gerðar þær kröfur að Morgunblaðið biðjist afsökunar á fréttaflutningi Morgunblaðsins í dag og einnig að Inga Frey verði greiddar miskabætur. Ingi Freyr gaf Agnesi og útgefendum blaðsins frest til klukkan fjögur í dag til að bregðast við kröfu hans um afsökunarbeiðni og miskabætur. Í fréttinni, sem Agnes Bragadóttir skrifar, var haft eftir ónafngreindum vitnum að Ingi Freyr væri með réttarstöðu grunaðs manns í „rannsóknum" lögreglu. Þá er njósnamálið svokallaða á Alþingi og birting á gögnum sem tengjast viðskiptamönnum og talin eru hafa verið stolin af ungum manni sem nú vinni fyrir Wikileaks spyrt saman. Jafnframt var því haldið fram að Ingi Freyr hefði beðið unga manninn, gegn þóknun, að stela gögnum sem varða Milestone og Eið Smára Guðjohnsen. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu, staðfesti í samtali við Vísi í morgun að Ingi Freyr hefði ekki réttarstöðu sakbornings í njósnamálinu. Í bréfinu sem lögmaður Inga Freys sendi Agnesi segir að ummæli Morgunblaðsins séu ærumeiðandi, Ingi Freyr sé bendlaður við brot sem varði sjálft Alþingi og að hafa hvatt ólögráða einstakling til lögbrota. Samkvæmt heimildum Vísis barst ekki svar við bréfinu fyrir klukkan fjögur og verður því að gera ráð fyrir því að málið fari fyrir dómstóla. Reynir Traustason, ritstjóri DV, sagði málið ekki á forræði útgáfu blaðsins heldur hjá blaðamanninum sjálfum.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira