Sigurður: Þjóðverjarnir komu á óvart Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. janúar 2011 20:36 „Ég hefði viljað sjá Arnór skjóta meira," sagði Sigurður Bjarnason. Mynd/Valli „
Þetta var alls ekki lélegur leikur hjá okkur. En það kom mér mikið á óvart hversu öflugan varnarleik Þjóðverjar voru að spila," sagði Sigurður Bjarnason, einn sérfræðinga Vísis um HM í handbolta. Ísland tapaði í dag fyrir Þýskalandi, 27-24, í fyrstu umferð milliriðlakeppninnar eftir að staðan hafi verið 15-13 í hálfleik, Þjóðverjum í vil. „Þetta fór ekki eins og ég spáði," sagði Sigurður sem var vitanlega svekktur með niðurstöðuna. „Vissulega hefðum við getað spilað grimmari varnarleik og við vorum ekki alveg nógu vel á tánum þar. En samt var hann nokkurn veginn í lagi." „Það var fyrst og fremst gríðarlega öflugur varnarleikur Þjóðverja sem kom mér á óvart. Þar að auki voru þeir afar duglegir að hlaupa til baka í vörn og mættu okkur í hverri einustu aðgerð. Markvörðurinn þeirra átti einnig frábæran dag í markinu." „Ég hefði viljað sjá Arnór skjóta meira. Ég hefði jafnvel líka viljað fá Aron í vinstri skyttuna og Snorra á miðjuna," bætti Sigurður við. „Við höfum verið að spila vel á þessu móti og héldum í dag áfram að gera það sem hefur verið að ganga vel. En Þjóðverjarnir áttu einfaldlega frábæran leik." Ísland vann Þýskaland í tveimur æfingaleikjum í Laugardalshöllinni í upphafi mánaðarins. „Það voru margir sem sögðu þá að Þjóðverjarnir gætu ekki neitt. Það er auðvitað ekki rétt og nú mættu þeir gríðarlega vel undirbúnir til leiks. Þeir voru búnri að stúdera okkur í bak og fyrir. Þeir spiluðu hægar og notuðu línuna mikið. Eftir leikina heima sögðu margir að þeir ættu lélega línumenn en annað kom á daginn í dag." „Þjóðverjar tóku okkur mjög alvarlega. Þeir unnu heimavinnuna sína mjög vel og voru reynslunni ríkari eftir leikina heima." Logi Geirssson, einn sérfræðinga í þætti Þorsteins J. á Stöð 2 Sport, sagði eftir leikinn í kvöld að hann hefði saknað þess að sjá ekkert nýtt frá íslenska landsliðinu í kvöld. „Ég er sammála því. En það eru takmörk fyrir því hversu oft við getum boðið upp á einhverjar nýjungar. Mér finnst að þetta hafi alls ekki verið lélegur leikur hjá okkur." „Nú er staðan einfaldlega þannig að hver leikur er úrslitaleikur fyrir okkur. Við eigum Spánverja næst og það er að duga eða að drepast í þeim leik. Nú er þetta galopið og það er auðvitað bara skemmtilegt."
Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira