NBA í nótt: Níundi sigur Orlando í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2011 11:30 Dwight Howard og Tyson Chandler í barátunni í nótt. Mynd/AP
Orlando vann í nótt sinn níunda sigur í röð í NBA-deildinni í körfubolta er liðið lagði Dallas, 117-107. Dallas byrjaði betur og komst sextán stigum yfir í fyrri hálfleik. En það dugði ekki til þar sem Orlando tók leikin í sínar hendur í síðari hálfleik. Dwight Howard var með 23 stig og þrettán fráköst fyrir Orlando. Jason Richardson var með 20 og Jameer Nelson sextán. Nýju mennirnir, Hedo Turkoglu (13 stig, 17 fráköst) og Gilbert Arenas (14 stig) náðu sér einnig vel á strik. Dirk Nowitzky gat ekki leikið með Dallas vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik gegn Oklahoma City þann 27. desember. Shawn Marion skoraði átján stig fyrir Dallas og Jason Terry var með sextán stig og níu stoðsendingar. Dallas hefur ekki unnið nema tvo leiki af sjö í fjarveru Nowitzky. Chicago vann Boston, 90-79. Derrick Rose skoraði 36 stig og Carlos Boozer var með 22 og tíu fráköst. Oklahoma City vann Memphis, 109-100. Kevin Durant skoraði 40 stig og Russell Westbrook bætti við 22 stigum og ellefu stoðsendingum fyrir Oklahoma City. Detroit vann Philadelphia, 112-109, í framlengdum leik. Austin Daye setti niður þriggja stiga körfu þegar 3,5 sekúndur voru til leiksloka og tryggði Detroit framlenginu. Charlotte vann Washington, 104-89. Stephen Jackson skoraði 21 stig fyrir Charlotte og DJ Augustin var með 20 stig. Atlanta vann Indiana, 108-93. Josh Smith var með 27 stig í leiknum, þar af fjórtán í fjórða leikhluta. Joe Johnson var með 24 stig. Milwaukee vann New Jersey, 115-92, þar sem afmælisbarnið Chris Douglas-Roberts skoraði 24 stig gegn sínum gömlu félögum í New Jersey. Utah vann Houston, 103-99, í framlengdum leik. Paul Millsap skoraði 27 stig, þar af tólf í framlenginunni.
Mest lesið Sænska pressan tætir landsliðið í sig Fótbolti HM-maður dagsins: Vann í verksmiðju og lætur leiðindi þjálfarans ekki stöðva sig Fótbolti Gagnrýndur fyrir að ætla af HM til að vera viðstaddur fæðingu Fótbolti Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Slógu met Íslands og markvörðurinn jafnaði met á HM Fótbolti Má ekki spila en hjálpar til við met: „Frekar skrýtið að horfa á þessa leiki“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Sport Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Slökktu á samfélagsmiðlum og treysta áfram á Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Sjá meira