Hefur þú skoðað www.planb.is ? Birkir Jón Jónsson skrifar 2. nóvember 2011 06:00 Þann 17. október síðastliðinn opnaði vefurinn www.planb.is. Á vefnum eru ítarlegar tillögur Framsóknar í efnahags-, sjávarútvegs- og atvinnumálum haustið 2011 settar fram á aðgengilegan hátt. Opnun vefsins er næsta skref í þeirri viðleitni þingflokks framsóknarmanna til að auka bein samskipti þingflokksins við fólkið í landinu. Sú tilraun hófst síðastliðið vor með opnun „Græna símans“ en í gegnum hann geta allir landsmenn náð beinu sambandi við þingflokk Framsóknar, komið tillögum og ábendingum á framfæri eða fengið mál tekin fyrir á þingflokksfundi með því að hringja í númerið 563 0755. Á www.planb.is eru tillögur Framsóknar settar fram á einfaldan hátt í tölusettum liðum og með stuttum myndböndum svo engin þörf er á að grafa djúpt ofan í vef Alþingis til að leita að stefnunni. Í kjölfarið geta allir komið athugasemdum á framfæri við þingflokkinn í gegn um Græna símann. Efnahagsmál – Almenna skuldaleiðréttingu í forgangForsenda þess að efnahagurinn taki við sér er að allir þekki sína stöðu. Það er því brýnt að ljúka endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja sem allra fyrst. Í febrúar 2009 lagði Framsókn til almenna leiðréttingu skulda sem því miður voru slegnar út af borðinu af öðrum flokkum vegna þess að kosningar voru á næsta leiti. Þá skipti meira máli frá hverjum tillögurnar komu en hvort þær væru skynsamlegar. Á undanförnum mánuðum hefur hins vegar komið skýrt fram að tillögur okkar um 20% leiðréttingu skulda voru ekki aðeins skynsamlegar heldur vel framkvæmanlegar. Framsóknarmenn hafa enn þá stefnu að almenn skuldaleiðrétting sé nauðsynleg. Þær smáskammtalækningar sem boðið hefur verið upp á, eins og 110% leiðin og tímabundin frystingarúrræði, hafa ekki virkað fyrir meginþorra þeirra sem þurfa á aðstoð að halda. Niðurstaðan er sú að nú þremur árum eftir efnahagshrunið hafa aðeins um 2% skulda heimilanna verið afskrifaðar. Ekki þarf að fjölyrða um að þetta er í hrópandi ósamræmi við þann tugprósenta afslátt sem nýju bankarnir fengu á húsnæðislánum við yfirfærsluna frá þrotabúum gömlu bankanna og nú er reiknaður sem hagnaður fyrir erlenda kröfuhafa eða sem aukið eigið fé til að standa undir kaupum á öðrum fjármálastofnunum. Það er því miður staðreynd að fólk sem þrátt fyrir erfiðleika hefur staðið í skilum og haldið áfram að borga af síhækkandi verðtryggðum lánum hefur ekki fengið neina lausn sinna mála. Almenn skuldaleiðrétting myndi gagnast þessum fjölskyldum best. Atvinnumál – Nýtum tækifærin sem eru til staðarAtvinna er forsenda hagvaxtar við núverandi aðstæður. Tækifærin eru til staðar og þau þarf að nýta bæði hvað varðar opinberar framkvæmdir sem reynast hagkvæmar sem og frumkvæði einstaklinga. Það var sorglegt að sjá þingmenn ríkisstjórnarinnar fagna því að tækifæri til atvinnuuppbyggingar og fjárfestingar fór forgörðum með brottför Alcoa í síðustu viku. Á tímum sem þessum er það skylda stjórnvalda að grípa tveim höndum hvert tækifæri sem gefst til að fá erlent fjármagn inn í landið og til að skapa atvinnu. Þar mega pólitísk markmið ekki skyggja á almannahag. Aðeins með aukinni verðmætasköpun og eftirspurn munu tekjur ríkissjóðs vaxa. Það er grundvöllur aukinnar velferðar þeirra sem minnst lífskjör hafa. Ef takast á að vinna bug á atvinnuleysinu og auka fjárfestingu og uppbyggingu í íslensku atvinnulífi verðum við að blása þegar í stað til samtaka stórsóknar í atvinnumálum. Í þeirri sókn verður að taka tillit til sem flestra þátta atvinnulífsins og hugsa sérstaklega til þátta sem geta gefið fyrirtækjum hvata til að auka umsvif og ráða fólk til vinnu. Ríkisvaldið verður að skapa jákvæða hvata, t.d. með skattkerfisbreytingum, fyrir uppbyggingu, nýsköpun og fjárfestingu til að íslenskt atvinnulíf geti dafnað á ný. Sjávarútvegsmál – Sátt um grundvallaratvinnugreinFramsókn vill að sameign þjóðarinnar á sjávarauðlindum verði tryggð með ákvæði í stjórnarskrá. Lögfesta þarf hvað hugtakið „sameign þjóðarinnar“ þýðir og tryggja að auðlindin skili þjóðinni arði. Mikilvægasta verkefnið á sviði sjávarútvegs er að skapa stöðugleika og eyða óvissu fyrir greinina svo hún geti dafnað og fjárfest í nýsköpun, aukið arðsemi og hagvöxt. Úthlutun aflaheimilda og nýtingarsamningar á þeim verða að byggjast á því að stjórnvöld fari með eignarréttinn á auðlindinni í umboði þjóðarinnar og geti með samningum falið öðrum nýtingarréttinn í ákveðinn tíma og magni. Þegar plan A virkar ekki verður að skipta yfir í plan B Plan ríkisstjórnarinnar um niðurskurð, skattahækkanir og fjárfestingafrost hefur fengið tvö og hálft ár til að sanna sig. Það plan hefur ekki virkað og því er kominn tími til að reyna nýjar leiðir. Á www.planb.is eru tillögur að nýjum leiðum sem mikilvægt er að málefnaleg umræða skapist um. Framtíð Íslands er björt. Íslendingum mun takast að rétta við efnahag landsins og byggja upp velferðarsamfélagið á ný. Til þess þarf aðeins samtakamátt þjóðarinnar og vilja til að taka nýjar ákvarðanir í efnahags- og atvinnumálum. Þor til að skipta um plan. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 31.05.2025 Halldór Er stríðsglæpamaður í rútunni? Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Hrönn Guðmundsdóttir Skoðun Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun Er ekki tími til kominn að tengja? Kristín María Birgisdóttir Skoðun Til hamingju með sjómannadaginn Sigurjón Þórðarson Skoðun Barnasáttmáli fyrir öll börn Guðný Björk Eydal,Paola Cardenas Skoðun Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78 Snorri Másson Skoðun Eins skýrt og það verður Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Ójafnvægið sem heimurinn býr við – og skellur á Bakka Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er stríðsglæpamaður í rútunni? Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Hrönn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju með sjómannadaginn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Er ekki tími til kominn að tengja? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Barnasáttmáli fyrir öll börn Guðný Björk Eydal,Paola Cardenas skrifar Skoðun Ójafnvægið sem heimurinn býr við – og skellur á Bakka Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bensínstöðvardíll og Birkimelur Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Trollveiðar og veiðiráðgjöf Magnús Jónsson skrifar Skoðun Gríðarlegir hagsmunir í húfi Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Skynsamleg forgangsröðun fjár Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Eins skýrt og það verður Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Að sameinast fjölskyldu sinni Guðrún Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Þögnin sem skapaði ótta – arfleifð Þórarins í Sameyki Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78 Snorri Másson skrifar Skoðun Eru forvarnir í hættu? Dagbjört Harðardóttir skrifar Skoðun Tveir alþingismenn og Gaza Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Hver borgar fyrir ódýrar lóðir? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Erum við að lengja dauðann en ekki lífið? Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Mikill munur á aðgengi að líknarmeðferð í Evrópu Kristín Lára Ólafsdóttir skrifar Skoðun Sumarið verður nýtt vel til uppbyggingar snjóflóðavarna Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Verður það að vera Ísrael? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Dýravernd - frumbyggjahættir Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Stórstraumsfjara mæld - HMS ráðþrota Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum fordómum ekki umburðarlyndi Snorri Sturluson skrifar Skoðun Landbúnaður á tímamótum – Við þurfum nýja stefnu Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Sjómenn til hamingju! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Leyfum mennskunni að sigra Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Fjölskyldan fyrst Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað er markaðsverð á fiski? Sverrir Haraldsson skrifar Sjá meira
Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir skrifar
Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun