Saksóknarinn löglega kjörinn 24. mars 2011 08:00 Kröfu Geirs H. Haarde um að ákæru á hendur honum fyrir landsdómi yrði vísað frá hefur verið hafnað. Fréttablaðið/Valli
Saksóknari Alþingis er löglega kjörinn þrátt fyrir að hann hafi ekki verið kjörinn á Alþingi á sama þingi og ákvað að ákæra skyldi Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir landsdómi. Þetta kemur fram í dómi landsdóms, sem hafnar kröfu Geirs um að máli á hendur honum verði vísað frá. Í lögum um landsdóm segir að þegar Alþingi ákveði að ákæra fyrir landsdómi skuli „jafnframt" kjósa saksóknara til að sækja málið. Eftir að ákveðið var að ákæra Geir var þingi slitið og var því saksóknarinn kosinn á nýju þingi. Það taldi verjandi Geirs gera það að verkum að saksóknarinn væri ekki rétt kjörinn og því ætti að vísa málinu frá. „Á kosningu saksóknara [...] urðu engar slíkar tafir að til réttarspjalla gætu horft gagnvart [Geir]," segir í dómi Landsdóms. Þar segir jafnframt að ekki sé hægt að líta svo á að ákvörðun um að ákæra og ákvörðun um saksóknara verði að koma fram í einu og sama þingmálinu. Kosning Alþingis á saksóknara sé því lögleg. - bj
Landsdómur Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir Þúsundir kvenna utan krabbameinsskimana Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Sjá meira