Sat saklaus í varðhaldi í fjórar vikur 10. febrúar 2011 19:00
Saklaus maður sat fjórar vikur í gæsluvarðhaldi fyrir meinta nauðgun. Honum var sleppt úr haldi á föstudaginn eftir að lífsýni sönnuðu sakleysi hans. Það var á Kaffibarnum sem hin meinta nauðgun átti að hafa átt sér stað. Engin vitni voru að atburðinum en stuðst var við lífsýni og þau send til Svíþjóðar til rannsóknar. Nú er niðurstaðin komin í ljós og maðurinn er saklaus. Hann sat engu að síður fjórar vikur í gæsluvarðhaldi. Maðurinn er erlendur ríkisborgari og var í heimsókn hér á landi. Hann var handtekinn þann 9. janúar. Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurðinn yfir manninum en þar kemur fram að vinkonur konunnar hafi komið að henni á klósetti skemmtistaðarins seint um nóttina. Sokkabuxur konunnar og nærbuxur hafi verið dregnar niðrum hana og hún rænulaus. Konan sjálf mundi ekkert af því sem gerðist og rankaði ekki við sér fyrr en á slysadeild. Við rannsókn málsins var stuðst við myndbandsupptökur og lífsýnin sem fundust í konunni. Í úrskurðinum er sagt að brot mannsins varði allt að 16 ára fangelsi. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti að hinum grunaða manni hefði verið sleppt úr haldi. Rannsókninni væri þó ekki lokið. Bjarni Hauksson, lögmaður mannsins, segir málið allt vekja furðu. Ekki séu vitni að atburðinum, konan muni ekkert eftir því sem gerist og maðurinn neiti sök. Engu að síður hafi hann setið saklaus í fjórar vikur í gæsluvarðhaldi. Hann íhugi nú næstu skref með sínum skjólstæðingi og útilokar ekki málsókn gegn ríkinu.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Erlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Sjá meira