Agnes verði dæmd til þungrar refsingar 7. febrúar 2011 18:50 „
Öll hin umstefndu ummæli eru ósönn, óviðurkvæmileg, tilhæfulaus og smekklaus og til þess fallin að sverta stefnanda. Hagsmunir stefnanda af því að fá ummælin dæmd dauð og ómerk eru því miklir," segir í stefnu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, fyrir hönd Inga Freys fréttastjóra á DV, vegna fréttar Morgunblaðsins 31. janúar um hina svokölluðu njósnastölvu á Alþingi. Ingi Freyr krefst þess að tíu ummæli í fréttum sem Agnes Bragadóttir skrifaði um mál njósnatölvunnar á Alþingi verði dæmd dauð og ómerk. Þá stefnir Ingi jafnframt Agnesi til að greiða sér tvær milljónir króna í miskabætur vegna fréttaflutningsins. Í stefnunni segir meðal annars: „Þess er krafist að stefnda verði dæmd til þungrar refsingar fyrir brot sín enda eru afleiðingar brotanna alvarlegar fyrir stefnanda en vegið var með harðsvíruðum hætti að æru hans, persónu og starfsheiðri." Agnes lét að því liggja í skrifum sínum í Morgunblaðinu að Ingi hefði fengið ungan mann undir lögaldri til að stela fyrir sig gögnum úr tölvum gegn þóknun og staðhæfði að hann hefði stöðu grunaðs manns í lögreglurannsókn á því máli. Þá var lögregla sögð rannsaka hvort maðurinn ungi sem grunaður er um þjófnaðinn tengdist máli njósnatölvunnar, meðal annars vegna meintra tengsla hans við Wikileaks og Inga. Yfirmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa staðfest að Ingi hafi ekki réttarstöðu grunaðs manns. „Umfjöllun stefndu um stefnanda er uppfull af rangfærslum og ærumeiðandi aðdróttunum, en þar er stefnandi sakaður um háttsemi sem margra ára fangelsi liggur við samkvæmt íslenskum lögum," segir í stefnunni.
Mest lesið Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent Fleiri fréttir Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Sjá meira