Hafa ekki fengið svör um fangaflug 27. desember 2011 03:15 Smáþota sem talin er hafa verið notuð til fangaflugs bandarísku leyniþjónustunnar var mynduð á Reykjavíkurflugvelli árið 2005, en þá var fjallað um málið í fréttum.Fréttablaðið/E.Ól.
Ísland er meðal Evrópulanda sem ekki hefur svarað fyrirspurn erlendra mannréttindasamtaka um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Í áfangaskýrslunni „Rendition on Record“, sem út kom í byrjun vikunnar og samtökin Reprieve og Access Info Europe standa að, kemur fram að af 28 Evrópulöndum sem beðin voru um upplýsingar um fangaflug Bandaríkjanna hafa einungis sjö svarað, Bandaríkin, Þýskaland, Írland, Danmörk, Litháen, Noregur og Finnland. Nærri helmingurinn, eða 46 prósent, hefur engu svarað. Stjórnvöld í Bandaríkjunum virðast hins vegar mun viljugri til að veita upplýsingar. Fram kemur í skýrslunni að Bandaríska flugmálastjórnin FAA hafi látið af hendi 27.128 færslur vegna flugs 44 flugvéla árin 2002 til 2006. Fangaflug CIA er hluti af „stríði Bandaríkjanna gegn hryðjuverkum“ þar sem grunaðir hryðjuverkamenn voru fluttir til landa þar sem þeir kunna að hafa verið pyntaðir. Rannsókn Reprieve og Access info Europe hefur nú staðið í hálft ár og segja samtökin að upplýsingabeiðni þeirra sé á reglubundinn hátt hunsuð í Evrópulöndum, eða látið sem hún sé léttvæg og það kalli á stöðuga eftirfylgni og þrautagöngu milli stofnana. Í umfjöllun á vef Reprieve er haft eftir Crofton Black, einum höfunda skýrslunnar, að sláandi dæmi um „áhyggjulausa velþóknun“ Evrópu sé að svör fáist greiðlega í Bandaríkjunum á meðan evrópska flugumferðarstjórnin Eurocontrol láti ekki svo mikið sem eina skráningu af hendi. „Eins er óásættanlegt að lönd á borð við Austurríki, Frakkland, Ítalíu, Lettland, Rúmeníu og Spán skuli hreinlega hunsa beiðnir um upplýsingar sem varða mikilvæg mannréttindi,“ segir hann. Þótt Ísland hafi ekki enn svarað er landið þó ekki sagt hunsa fyrirspurnina, heldur sé beðið „svars sem hefði átt að vera komið fram“. Friðþór Eydal, talsmaður Isavia ohf. (áður Flugstoðir), segir töf sem orðið hefur á að svara fyrirspurn erlendu samtakanna skýrast að nokkru af því að fyrirspurnin hafi upphaflega borist á rangan stað. Henni hafi verið beint til Flugmálastjórnar, sem aftur hafi komið henni áleiðis til Isavia. Þar liggi umbeðnar upplýsingar fyrir en þó sé ekki hægt að svara fyrirspurninni án heimildar stjórnvalda. „Við sendum þetta á innanríkisráðuneytið með ósk um fyrirmæli um hvernig taka ætti á málinu,“ segir Friðþór. Í gær lágu ekki fyrir upplýsingar um stöðu fyrirspurnarinnar hjá innanríkisráðuneytinu. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Fleiri fréttir Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Sjá meira