Forseti Hells Angels: Ummæli Ögmundar ólíðandi Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 11. desember 2011 13:49 Einar Marteinsson, forseti Hells Angels á Íslandi mynd/Valgarður
Forseti Hells Angels á Íslandi segir það ólíðandi að ráðherra dómsmála leyfi sér að kalla samtökin opinberlega glæpasamtök. Hann segir lögreglu landsins mjög ótrúverðuga. Vítisenglar stefndu á fimmtudag Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra, Haraldi Johannessyni ríkislögreglustjóra og íslenska ríkinu fyrir meiðyrði, vegna ummæla þess efnis að samtökin séu glæpasamtök og þannig tengd við skipulagða glæpastarfsemi. Ögmundur sagði í viðtali við fréttastofu á föstudag að hann standi við orð sín og muni svara fyrir þau hvar sem er og hvenær sem er. Einar Marteinsson, forseti Hells Angels á Íslandi segir þetta ólíðandi. „Við teljum það ólíðandi að yfirmaður dómsmála á Íslandi og yfirmaður lögreglunnar láti svona ummæli frá sér fara og þurfi ekki að sæta ábyrgð,“ segir Einar.En er þetta ekki gert út frá mati lögreglunnar á samtökunum? „Hún er byggð á röngum forsendum og lögreglan byggir mat sitt á röngum forsendum. Hún er byggð á blaðagreinum erlendis frá og það eru engar sannanir fyrir einu eða neinu,“ segir Einar. Fram kemur i skýrslu ríkislögreglustjóra frá árinu 2008 að stór vélhjólagengi á borð við Hells Angels séu alþjóðlegt vandamál sem haldi uppi skipulagðri glæpastarfsemi. „Það er bara eitthvað sem lögreglan segir,“ segir Einar. Og er ekki hægt að taka orð hennar trúanleg? „Lögreglan er mjög ótrúverðug.“Meðlimir í Hells Angels á Íslandi, eru þeir í daglegri vinnu? „Já“Geturðu nefnt mér einhver störf sem þeir vinna? „Ég er járnsmiður og vélstjóri og er sjálfur að reyna að opna tattú-stofu. Það eru smiðir, fiskverkunarmenn og svo framvegis,“ segir Einar.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira