Katrín: Líður eins og eftir tap Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 21. september 2011 22:41
Katrín Jónsdóttir fyrirliði Íslands leið eins og Ísland hafi tapað fyrir Belgíu eftir markalausa jafnteflið á Laugardalsvellinum í kvöld. "Þetta var ekki nógu gott hjá okkur í dag, því miður. Mér finnst við vera með betra lið en Belgía en við náðum ekki að sýna það nógu vel. Þetta er rosalega svekkjandi," sagði Katrín. "Við sköpum okkur rosalega mikið af færum en því miður var þetta stöngin út. Það er allt liðið sem tapar þessum leik, það er ekki bara þar sem við töpum leiknum. Manni líður virkilega eins og maður hafi tapað leiknum en það má ekki gleyma því að þetta er eitt stig. Við leiðum ennþá riðilinn og það eru allir möguleikar ennþá í þessu." "Þetta er almennilegt spark í rassgatið og þegar við förum út í október þá kemur ekkert annað til greina en tveir sigrar," en Ísland mætir Ungverjalandi og Norður-Írlandi ytra í október. "Ég vil ekki meina að það hafi verið neitt vanmat í hópnum. Við undirbjuggum okkur fyrir þennan leik eins og alla aðra leiki og við vissum að Noregsleikurinn myndi ekki gefa okkur neitt. Af hverju boltinn fór ekki inn í dag, ég hef ekki útskýringu á því. Svona er þetta stundum, því miður." "Þær sköpuðu sér mjög lítið en þær eru með agaðan varnarleik, eru þéttar og berjast og uppskáru þetta stig vegna þess," sagði Katrín að lokum.
Íslenski boltinn Mest lesið HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Fleiri fréttir Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings