Hallbera og Dagný báðar með tvennu í 6-1 sigri Vals á Þór/KA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2011 21:04 Málfríður Erna Sigurðardóttir í leiknum í dag. Mynd/Stefán
Íslandsmeistarar Vals voru í miklum ham á móti Þór/KA í lokaleik 4. umferðar Pepsi-deildar kvenna í kvöld en þær unnu leikinn 6-1 og skoruðu tveimur fleiri mörk í kvöld en í fyrstu þremur umferðunum. Með sigrinum komust Valskonur upp fyrir Stjörnuna og í annað sæti deildarinnar en nýliðar ÍBV eru með tveggja stiga forskot á toppnum. Hallbera Guðný Gísladóttir og Dagný Brynjarsdóttir skoruðu báðar tvö mörk í kvöld en hin mörk Valsliðsins skoruðu þær Caitlin Miskel og Rakel Logadóttir. Mateja Zver minnkaði muninn fyrir Þór/KA. Valskonur spiluðu frábærlega í kvöld og sýndu að þær eru búnar að hrista af sér slenið eftir rólega byrjun í deildinni. Þór/KA-liðið tapaði hinsvegar öðru sinni stórt í sumar en ÍBV vann þær 5-0 fyrir norðan í fyrstu umferðinni. Hallbera Guðný Gísladóttir skoraði fyrsta markið með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu utan af kanti á 33. mínútu. Dagný Brynjarsdóttir skoraði annað markið á 38. mínútu með skoti utan úr teig eftir að boltinn barst til hennar eftir mikla pressu að marki Þór/KA. Hallbera Guðný Gísladóttir skoraði þriðja markið beint úr aukaspyrnu af um 30 metra færi á 41. mínútu og höfðu Valskonur þar með skorað þrjú mörk á átta mínútna kafla. Mateja Zver minnkaði muninn á 57. mínútu með þrumuskoti af löngu færi en Caitlin Miskel kom Val í 4-1 á 63. mínútu eftir að Þórsliðinu mistókst að hreinsa frá fyrirgjöf Thelmu Bjarkar Einarsdóttur. Dagný skoraði sitt annað mark á 73. mínútu og kórónaði þar frábæran leik sinn. Rakel Logadóttir innsiglaði síðan sigurinn eftir flottan undirbúning Caitlin Miskel.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira