Dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun og rán 9. desember 2011 13:15
Þrítugur karlmaður, Stefán Þór Guðgeirsson, var í dag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga konu og ræna hana. Maðurinn hafði í upphafi sóst eftir kynlífsþjónustu frá konunni og þegar hún neitaði honum um það þröngvaði hann henni til samræðis og annarra kynferðismaka. Hann beitti hana margvíslegu ofbeldi á meðan á nauðguninni stóð. Honum var einnig gefið að sök að hafa tekið um hár konunnar og dregið hana um íbúðina. Þá var hann sagður hafa brotið leirtau, hótað konunni að svipta hana vegabréfi sínu, ógnað henni með hnífi, hótað henni lífláti, sprautað yfir hana og íbúð hennar úr slökkvitæki og neytt hana til að afhenda sér 20 þúsund krónur. Auk þess tók hann fartölvu í eigu konunnar með sér þegar hann fór af vettvangi. Við yfirheyrslur kom fram að maðurinn hafi fundið nafn konunnar í smáauglýsingum á Vísi og konan hafði sjálf sagt við lögreglu þegar rætt var við hana á Neyðarmóttöku að hún hefði auglýst nuddþjónustu í Fréttablaðinu, en þær auglýsingar birtast ennfremur á Vísi. Þess ber að geta, að frá því atburðurinn átti sér stað hefur Fréttablaðið og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu efnt til samstarfs um að koma í veg fyrir „birtingar hugsanlegra dulinna vændisauglýsinga."Ósáttur við 20 þúsund krónur fyrir munnmök Maðurinn játaði við yfirheyrslur að hann hafi lent í rifrildi við konuna og sagðist hafa verið ósáttur við að þurfa að borga 20 þúsund krónur fyrir munnmök. Hann neitaði því hinsvegar að hafa nauðgað henni og sagðist heldur ekki hafa beitt hana líkamlegu ofbeldi eða hótað lífláti. Þegar Stefán mætti til læknisfræðilegrar rannsóknar sem hann var boðaður í virðist vera sem hann hafi rakað allt hár af sér. „Það hafi augljóslega verið gert í flýti og af óvandvirkni og að því er virðist af ákærða sjálfum. Þá virðist öll kynhár nýlega hafa verið rökuð af," segir í dóminum. Dómari segir hinsvegar að, með vísan til trúverðugs framburðar brotaþola og sönnunargagna annarra, þyki hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi þröngvað brotaþola til samræðis og annarra kynferðismaka með líkamlegu ofbeldi. Dómari telur tilgátu ákærða þess efnis að konan hafi með einhverjum hætti sviðsett nauðgunina með fárhagslegan ávinning í huga, vera fráleita. Hann var hinsvegar sýknaður af því að hafa slegið konuna og af því að hafa dregið hana á hárinu. „Brotaþoli var með ferskan áverka á læri. Styður það framburð brotaþola um að ákærði hafi slegið brotaþola í lærið með grófri hálskeðju," segir í dóminum.Kynferðisbrot og rán „Þá telst sannað að ákærði hafi hótað brotaþola lífláti og því að hafa hótað því að svipta hana vegabréfi," segir ennfremur í dóminum. „Einnig telst sannað að ákærði hafi sprautað yfir brotaþola og íbúðina úr slökkvitæki. Að því er varðar hótun með hnífi er til þess að líta að hnífur fannst ekki á vettvangi og getur staðist staðhæfing brotaþola um að ákærði hafi haft hnífinn á brott með sér af vettvangi. Gegn mótmælum ákærða telst hins vegar ekki sannað að ákærði hafi hótað henni með hnífi. Ákærði beitti brotaþola ofbeldi. Í beinu framhaldi tók hann 20.000 krónur í reiðufé og fartölvu frá brotaþola og hafði á brott með sér. Er með því fullnægt skilyrðum 252. gr. laga nr. 19/1940 til að sakfella ákærða fyrir rán. Að gættum þeim atriðum sem hér að framan hefur verið fjallað um verður ákærði sakfelldur samkvæmt ákæru fyrir kynferðisbrot og rán og er háttsemin rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru," segir ennfremur í niðurstöðu dómsins. Maðurinn á all langan sakaferil að baki og á hann sér engar málsbætur að mati dómara. Því var hann dæmdur í fjögurra ára fangelsi auk þess sem hann þarf að greiða konunni 1200 þúsund krónur í skaðabætur.
Tengdar fréttir Hrottalegt nauðgunarmál: Konan nýtur verndar en réttargæslumaður fullyrðir að hún sé unnusta hins grunaða Stefán Þór Guðgeirsson hlaut fimm ára dóm fyrir nauðgun árið 2012. Hann var á reynslulausn í desember þegar hann var handtekinn grunaður um hrottalega nauðgun. 28. desember 2016 13:07 Vændi verði síður aðgengilegt Fréttablaðið og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafa efnt til samstarfs um að koma í veg fyrir birtingar hugsanlegra dulinna vændisauglýsinga. 15. október 2011 08:45 Í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun og tilraun til vændiskaupa Hæstiréttur dæmdi í dag Stefán Þór Guðgeirsson í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu sem hann hafði ætlað að kaupa vændi af. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í fjögurra ára fangelsi fyrir sama brot. Brotið var framið í september 2009. 20. september 2012 16:48 ,,Þetta er fangelsi sem er fullt af fíklum og ef það er vilji, þá er leið“ Ríkharður Ríkharðsson refsifangi segir mun minni neyslu á Litla Hrauni en í fangelsum víða erlendis. Erfitt sé að koma í veg neyslu í fangelsinu. Hann segir mikla breytingu hafa orðið á Litla Hrauni á síðustu tíu árum en alltaf megi gera betur. 22. nóvember 2013 16:50 Mest lesið „Það er erfitt að setja sig í hermannagalla í litlu sveitarfélagi” Innlent Gekk fram á dauða seli: „Svona á enginn að gera“ Innlent Svona gæti Sundabraut litið út: Brú eða göng meðal valkosta Innlent Segir Fallon og Meyers næsta: „Gerið þetta NBC!!!“ Erlent Munu leggja fram vísindalegar sannanir fyrir því að Brigitte sé líffræðilega kona Erlent Ráðast á fangaverði og skvetta á þá ýmsum líkamsvessum Innlent „Ævintýralegur ávinningur“ og ráðherra segir auðvelt að sækja um Innlent Eltihrellir sat fyrir lögregluþjónum og skaut þrjá til bana Erlent Vilja að átján ára fái að kaupa áfengi Innlent Hafnar kröfu um ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar Innlent Fleiri fréttir Harma áform stjórnvalda sem heimila hækkun gjalda Innan við helmingur segist trúaður Guðjón Ragnar skipaður skólameistari „Ég er bara eins og ég er og tala bara eins og ég tala“ Inga á móti neitunarvaldi sveitarfélaga „Ævintýralegur ávinningur“ og ráðherra segir auðvelt að sækja um Kjósa um sameiningu sveitarfélaganna í lok nóvember og desember Gísli Marteinn „alls ekki“ á leið í framboð Vilja að átján ára fái að kaupa áfengi Ráðherra boðar stórtækar breytingar og Viðskiptaráð vill finna olíu Hafnar kröfu um ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar Svona gæti Sundabraut litið út: Brú eða göng meðal valkosta Stefnir í að forystan verði óbreytt Gekk fram á dauða seli: „Svona á enginn að gera“ Vilja byggja nýtt geðsvið við hlið Landspítalans í Fossvogi Íbúar þurfa ekki lengur að sjóða neysluvatn Ráðast á fangaverði og skvetta á þá ýmsum líkamsvessum „Það er erfitt að setja sig í hermannagalla í litlu sveitarfélagi” Helmingur nýrra íbúða óseldur í yfir 200 daga Ógnaði öðrum með skærum 3,6 stiga skjálfti mældist í Vatnajökli Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem einangra sig félagslega Segja áform ráðherra grafa undan þjónustu Óttast að áætlanir ráðherra muni fækka leigubílstjórum Ekki eigi að stjórna borginni út frá „pólitískri kreddu“ Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Skorast ekki undan ábyrgð vilji flokksmenn nýjan oddvita Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Skipulagsbreytingar á framhaldsskólastigi í vændum Mæður sem taka í vörina á meðgöngu og missáttir leigubílstjórar Sjá meira
Hrottalegt nauðgunarmál: Konan nýtur verndar en réttargæslumaður fullyrðir að hún sé unnusta hins grunaða Stefán Þór Guðgeirsson hlaut fimm ára dóm fyrir nauðgun árið 2012. Hann var á reynslulausn í desember þegar hann var handtekinn grunaður um hrottalega nauðgun. 28. desember 2016 13:07
Vændi verði síður aðgengilegt Fréttablaðið og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafa efnt til samstarfs um að koma í veg fyrir birtingar hugsanlegra dulinna vændisauglýsinga. 15. október 2011 08:45
Í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun og tilraun til vændiskaupa Hæstiréttur dæmdi í dag Stefán Þór Guðgeirsson í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu sem hann hafði ætlað að kaupa vændi af. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í fjögurra ára fangelsi fyrir sama brot. Brotið var framið í september 2009. 20. september 2012 16:48
,,Þetta er fangelsi sem er fullt af fíklum og ef það er vilji, þá er leið“ Ríkharður Ríkharðsson refsifangi segir mun minni neyslu á Litla Hrauni en í fangelsum víða erlendis. Erfitt sé að koma í veg neyslu í fangelsinu. Hann segir mikla breytingu hafa orðið á Litla Hrauni á síðustu tíu árum en alltaf megi gera betur. 22. nóvember 2013 16:50