Sport

Fagnaði snertimarki með því að faðma klappstýru andstæðingsins

Ansi skemmtileg uppákoma átti sér stað í leik Dallas Cowboys og Buffalo Bills í gær. Þá fagnaði leikmaður Bills, David Nelson, snertimarki með þvi að faðma klappstýru Cowboys, Kelsi Reich. Hann gaf henni þess utan boltann.

Þetta á sér allt eðlilegar skýringar enda hafa Nelson og Reich verið kærustupar til margra ára. Nelson sjálfur er fæddur og uppalinn í Texas.

Hann var búinn að lofa kærustunni þvi að fagna á sérstakan hátt ef hann myndi skora snertimark og stóð við stóru orðin.

Reich vissi ekki við hverju var að búast og vissi engan veginn hvernig hún átti að haga sér er hún fékk faðmlagið og boltann frá Nelson. Þetta var eina snertimark Buffalo í leiknum en Dallas hreinlega valtaði yfir Nelson og félaga í þessum leik.

Leikmaðurinn hefur útilokað að biðja hennar í beinni á vellinum.

Hægt er að sjá þessa skemmtilegu uppákomu í myndbandinu hér að ofan.





NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×