Erlent

Alpatindar auglýstir til sölu

Austurríska ríkið vill selja tvo fjallstinda í Ölpunum fyrir sem samsvarar um 20 milljónum íslenskra króna. Bæði fjöllin, Grosser Kinigar sem er 2.690 m hátt og Rosskopf sem er 2.600 m, eru við landamæri Ítalíu.

Josef Ausserlechner, bæjarstjóri í bænum Kartitisch sem er við rætur þessara fjalla, bendir á að Grikkir selji eyjarnar sínar. Yfirvöld í Kartitisch hafa áhuga á að bjóða í tindana. Bæjarstjórinn hefur þó ekki áhuga á að greiða nema lítið brot af upphæðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×