Viðskipti innlent

Greining telur Seðlabankann í verulegum vanda

Gangi spár greiningar Arion banka eftir er útlit fyrir að ársverðbólgan færist nú fjær verðbólgumarkmiði en í því felst verulegur vandi fyrir Seðlabankann. Bankinn stendur á ákveðnum krossgötum í augnablikinu.

Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að verðbólguspá greiningarinnar geri nú ráð fyrir að ársverðbólgan verði 4,6% í lok sumars. Greiningin spyr hvort Seðlabankinn muni hækka vexti ofan í þann efnahagsslaka sem er til staðar?

„Að mati Greiningardeildar er Seðlabankinn hins vegar að kljást við margfalt stærra vandamál (en sá verðbólgukúfur sem gengur nú yfir) en það snýr að trúverðugleika peningastefnunnar. Seðlabankinn er nú að lenda í því að fara inn í enn eitt verðbólguskeiðið án þess að nægur trúverðuleiki sé til staðar," segir í Markaðspunktunum.

„Í því ástandi hefur vaxtahækkun takmörkuð áhrif á væntingar almennings og markaðsaðila, þ.m.t. verðbólguvæntingar. Má því velta fyrir sér hversu mikil (ef einhver) áhrifin yrðu af vaxtahækkun á verðbólgu næstu misserin. Í raun er hægt að færa rök fyrir því að vaxtahækkun yrði til þess fallin að hafa verðbólguhvetjandi áhrif að því leyti að vaxtahækkun hækkar fjármagnskostnað ríkis og fyrirtækja, sem skilar sér út í verðlagið á endanum.

Seðlabankinn er hinsvegar ekki einn um að vera í vandræðum vegna sívaxandi verðbólgu. Vitaskuld eru stjórnvöld komin í ákveðinn „bobba" þar sem fyrr í mánuðinum var undirritaður kjarasamningur sem innihélt m.a. forsendur um stöðugt verðlag og að ársverðbólgan verði undir 2,5% verðbólgumarkmiði í árslok 2012.

Þá má ekki gleyma þeim verðbólguáhrifum sem hinir nýju kjararsamningar munu án efa hafa á næstunni. Búast má við að áhrifin komi strax fram á næstu mánuðum, þar sem fyrirtæki í geirum eins og verslun og þjónustu munu ýta auknum launakostnaði jafnóðum út í verðlag (sjáum áhrifin e.t.v. strax í júní). Jákvæðu fréttirnar (ef jákvæðar má kalla) eru þó þær að hagkerfið er í miklum slaka og langt undir fullri framleiðslugetu. Ólíklegt er því að einhvers konar þensluverðbólga líti dagsins ljós á næstunni."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×