Greining telur Seðlabankann í verulegum vanda 25. maí 2011 16:58
Gangi spár greiningar Arion banka eftir er útlit fyrir að ársverðbólgan færist nú fjær verðbólgumarkmiði en í því felst verulegur vandi fyrir Seðlabankann. Bankinn stendur á ákveðnum krossgötum í augnablikinu. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að verðbólguspá greiningarinnar geri nú ráð fyrir að ársverðbólgan verði 4,6% í lok sumars. Greiningin spyr hvort Seðlabankinn muni hækka vexti ofan í þann efnahagsslaka sem er til staðar? „Að mati Greiningardeildar er Seðlabankinn hins vegar að kljást við margfalt stærra vandamál (en sá verðbólgukúfur sem gengur nú yfir) en það snýr að trúverðugleika peningastefnunnar. Seðlabankinn er nú að lenda í því að fara inn í enn eitt verðbólguskeiðið án þess að nægur trúverðuleiki sé til staðar," segir í Markaðspunktunum. „Í því ástandi hefur vaxtahækkun takmörkuð áhrif á væntingar almennings og markaðsaðila, þ.m.t. verðbólguvæntingar. Má því velta fyrir sér hversu mikil (ef einhver) áhrifin yrðu af vaxtahækkun á verðbólgu næstu misserin. Í raun er hægt að færa rök fyrir því að vaxtahækkun yrði til þess fallin að hafa verðbólguhvetjandi áhrif að því leyti að vaxtahækkun hækkar fjármagnskostnað ríkis og fyrirtækja, sem skilar sér út í verðlagið á endanum. Seðlabankinn er hinsvegar ekki einn um að vera í vandræðum vegna sívaxandi verðbólgu. Vitaskuld eru stjórnvöld komin í ákveðinn „bobba" þar sem fyrr í mánuðinum var undirritaður kjarasamningur sem innihélt m.a. forsendur um stöðugt verðlag og að ársverðbólgan verði undir 2,5% verðbólgumarkmiði í árslok 2012. Þá má ekki gleyma þeim verðbólguáhrifum sem hinir nýju kjararsamningar munu án efa hafa á næstunni. Búast má við að áhrifin komi strax fram á næstu mánuðum, þar sem fyrirtæki í geirum eins og verslun og þjónustu munu ýta auknum launakostnaði jafnóðum út í verðlag (sjáum áhrifin e.t.v. strax í júní). Jákvæðu fréttirnar (ef jákvæðar má kalla) eru þó þær að hagkerfið er í miklum slaka og langt undir fullri framleiðslugetu. Ólíklegt er því að einhvers konar þensluverðbólga líti dagsins ljós á næstunni."
Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira